156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[23:19]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég og hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson ræddum saman áðan og fórum yfir mál og að einhverju leyti má vera að um misskilning hafi verið að ræða og öðru leyti ekki. Ég bið bara hv. þm. Sigurjón Þórðarson að horfa á þetta hér á eftir.

Ég ítreka það sem var sagt áðan varðandi samsvör; ég bið forseta um að hlutast til um það að annaðhvort megi þingmenn minni hlutans gera þetta eins og meiri hlutinn eða þá að meiri hlutinn megi heldur ekki gera þetta. Það þarf að vera sanngirni hér inni.

(Forseti (ÞSv): Nú ætlar forseti að gera hv. þingmönnum grein fyrir því að þær reglur sem hér er starfað eftir voru ekki samdar í gær og ekki af núverandi forseta. Þær hafa verið hér við lýði um nokkra hríð.)