156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[23:22]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég kann illa við það þegar hv. þingmenn gera lítið úr eins mikilvægri umræðu og er búin að vera hér í dag. Ég er bara mjög sár yfir því að þegar umræðan var hér einmitt um málið í dag, um Grindavík, það mál var til 2. umræðu, þar sem ég fór mjög efnislega yfir þau atriði sem mér þótti hv. umhverfis- og samgöngunefnd ekki hafa farið yfir eða tekið tillit til. Ég vil líka benda á það að þetta var fyrsta tækifærið sem Alþingi fékk til að ræða málefni Grindavíkur eftir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ég vil benda á það að hv. stjórnarþingmaður Guðbrandur Einarsson gerði slíkt hið sama, sagði að fyrst hann fengi tækifæri hér til að ræða málefni Grindavíkur almennt þá væri það mikilvægt. Það var bara það sem við gerðum og bið ég hv. þingmann um að tala um það málþóf við hv. formann umhverfis- og samgöngunefndar.