námsgögn.
Frú forseti. Ég vil bara bera af mér þær sakir að ég hafi verið hér í einhvers konar málþófi. Hér er ég með vel yfir tíu blaðsíður af efni sem ég vann fyrir þessar umræður um námsgögn. Ég tók reyndar ekki þátt í Grindavíkurumræðunni. Mér finnst það sérstakt að í fyrstu ræðu, þegar maður er búinn að leggja einhverra tíma vinnu í það að greina frumvarp um námsgögn. Þó að ég sé skólamaður þá er ég ekkert endilega meiri sérfræðingur í því en aðrir og ég bara frábið mér þann málflutning að það sé eitthvert málþóf í gangi hér.