námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa góðu spurningu. Ég tek undir þær hugmyndir eða vangaveltur að það sé gott að horfa á mælanleika eða bara algerlega nauðsynlegt að horfa á mælanleika. Ég held einmitt að það gæti hreinlega verið spennandi í samhengi við þessa áherslu á námsgögn að ráðuneytið og hæstv. ráðherra horfi dálítið á: Hvar eru veikleikarnir? Í hvaða fögum eru raunverulegir veikleikar? Við höfum talað hér um lestur. Við höfum talað um stærðfræði. Hvar vantar gott námsefni sem kannski kveikir áhuga nemenda og hjálpar okkur að ná lengra í þessum fögum? Það má setja ákveðnar áherslur á ákveðin fög. Síðan má þá útdeila styrkjum til þess að leggja sérstaka áherslu á þessi fög. Og þegar námsefni er tilbúið, t.d. nýtt námsefni, má prófa það í ákveðnum skólum og bera árangur þessa nýja efnis saman við t.d. annan bekk sem notar eldra efni. Þannig getum við verið að sjá, með því að gera svona samanburðarathuganir, hvort við séum að ná árangri með þessu nýja efni eða hvort það er kannski peningasóun. Auðvitað tekur kannski tíma, eitt, tvö, þrjú ár, að meta raunverulega árangur nýs efnis. En ég held að það að hafa þennan mælanleika sé gott fyrir okkur öll sem samfélag. En það er líka gott fyrir þann sem fær styrk, að vita til hvers er ætlast. Það er ætlast til að námsefnið nýtist til að ná ákveðnum mælanlegum markmiðum og það er líka hvetjandi fyrir kennara sem eru að nota efnið að átta sig á því: Ókei, (Forseti hringir.) hér er ég með sérhannað efni fyrir ákveðinn tilgang og það er spennandi að prófa það með þau mælanlegu markmið í huga.