156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[23:37]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir virkilega gott svar og góðar pælingar og vangaveltur um skólamál. Ég velti því þá fyrir mér hvað hv. þingmaður myndi segja við því að það væru ákveðnir hvatar til að búa til námsefni í þeim greinum þar sem íslensk börn standa höllustum fæti, hvort það ætti að eyrnamerkja þá fjármagn og forgangsraða í raun fjármagni út frá einhvers konar greiningu á stöðunni eins og hún er núna. Fjármagnið er takmörkuð auðlind og við verðum að koma því á þá staði þar sem það nýtist best. Það er alla vega mitt mat. Það væri fróðlegt að heyra hvað hv. þm. Halla Hrund Logadóttir segir um það. Varðandi lestrarefni fyrir yngstu bekki grunnskólans og mögulega í leikskólanum líka stöndum við höllum fæti. Það vantar áhugavert og gott lesefni fyrir börn á þessu skólastigi og það námsefni og það lestrarefni þarf að spanna ansi mikinn vitsmunalegan getumun því að í sex ára bekk, 1. bekk grunnskóla, eru börn sem gætu þess vegna lesið Laxness nánast og börn sem ekki þekkja stafina. Ég varpa þessu fram til hv. þm. Höllu Hrundar Logadóttur, hvað henni finnist um þetta.