námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög áhugaverðar frekari spurningar. Ég tel að það sé nauðsynlegt þegar við erum, eins og hv. þingmaður segir og kemur réttilega inn á, með takmarkað fjármagn, að tengja úthlutun að einhverju leyti við lykiláherslur. Það hlýtur að gefa augaleið að þær lykiláherslur hljóta að vera í takt við það þar sem við stöndum höllustum fæti, þ.e. þessar grunngreinar, eins og þú komst inn á áðan. Við erum að tala um grunnskólann, þetta er grunnþekking og við þurfum að leggja sérstaka áherslu á þær. Ég segi líka bara: Er það ekki spennandi viðfangsefni fyrir okkur sem þjóð að vera með slíkt átaksverkefni? Við erum þjóð átaksverkefnanna. Við erum góð þegar kemur að því að ná árangri í einhverju ákveðnu og ég held að það sé bara spennandi að ná dálítið svona, hvað á að segja, samfélagssátt um það líka, að það sé einhver ákveðinn forgangur sem birtist þá í styrkúthlutunum og að við fáum alla með í samfélaginu. Það getur sannarlega gerst í gegnum fjárúthlutanir til ólíkra verkefna sem draga að hæfileikafólk í námsefnisgerð.
Svo vil ég líka aðeins að lokum segja að þegar við erum að horfa á námsefnisgerð þá erum við dálítið oft að hugsa um bara nýja bók eða eitthvað svona hefðbundið. En ég held t.d. að með snjalltækjum og öðru sem við höfum stundum talað um muni reyna á nýja hugsun líka í námsefnisgerð, að við séum að hugsa um námsefnisgerð sem gerir ráð fyrir samveru á milli barna og foreldra við lestur þannig að námsefnið sjálft sé í eðli sínu ekki bara lesturinn heldur einhver ákveðin hugsun í kringum það hvernig kennslan á að fara fram, ekki bara í skóla heldur líka heima.