156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[23:42]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar að leggja nokkur orð í belg í þessari umræðu um frumvarp til laga um námsgögn sem á sér uppruna hjá fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, en náðist ekki að klára á síðasta þingi. Ég ætla því að hrósa hæstv. ríkisstjórn fyrir að hafa ákveðið að taka þetta mál áfram og fara með það inn í þennan þingsal og klára það sem ég vona svo sannarlega að verði gert og vona að þetta fái góðar viðtökur hér á þinginu eins og það hefur nú heldur betur gert hér í dag og umræðan verið mikil um þetta góða og svo sannarlega veigamikla mál vegna þess að námsgögn og útgáfa á námsgögnum skiptir verulegu máli varðandi menntun hér á þessu ágæta landi.

Ég, virðulegur forseti, vil líka halda því fram að hér sé ákveðið jafnréttismál. Þótt upphæðirnar á einstakling séu kannski ekki miklar í stóra samhenginu þá er alveg ljóst að staða heimila og skóla getur verið misjöfn. Það á ekki að skipta máli hvaðan þú kemur eða úr hvaða aðstæðum þú kemur þegar kemur að aðgengi að námsgögnum. Því segi ég hér enn og aftur, virðulegur forseti, að ég fagna þessu frumvarpi og tel það mikla bót.

En hvað erum við í raun og veru að ræða hér og um hvað er þetta? Mig langar aðeins að fara yfir þetta vegna þess að við ræddum þetta töluvert á, eins og ég sagði, síðasta þingi og í þingflokki Framsóknarflokksins, sem þáverandi hæstv. mennta- og barnamálaráðherra var í. Við tókum nú svolitlar umræður um þetta og hann talaði um þetta mál af mikilli innlifun og hafði mikla trú á að þetta mál væri til hins betra. Við erum í raun og veru að tala um stuðning ríkisins við ákveðna nýsköpun og þróun, jafnvel þýðingu. Það kemur fram í þessu frumvarpi að það sé jafnvel verið að tala um þýðingu á námsgögnum og sama í hvaða formi þau eru, fyrir leik- og grunnskóla og framhalds- og tónlistarskóla sem er nýmæli sem ég kem nú betur að hér á eftir.

Þá er sömuleiðis lagt til að það verði lögfest markmið að tryggja gæði, framboð og fjölbreytileika námsgagna til að styðja við nám og kennslu í þessum skólum sem ég fór yfir áðan, sem eru þá leik-, grunn- og framhaldsskólar og þá tónlistarskólar. Þetta þarf að vera í samræmi við lög og reglur og aðalnámskrá og stefnu stjórnvalda hverju sinni.

Frumvarpið gengur út á, eins og fram hefur komið, að börnum standi til boða gjaldfrjáls námsgögn í þessum skólum en hér er átt við börn og ungmenni sem stunda leik-, grunnskóla- og framhaldsskólanám allt til 18 ára aldurs. Það er lagt til að ákvæðið taki gildi 2029 og hægt sé að innleiða þetta í áföngum. Ég held að það sé ágætismál.

Það eru kannski nokkrir hlutir í þessu. Það er annars vegar það sem II. kafli frumvarpsins fjallar um sem er námsgagnasjóðurinn. Hvað er átt við með námsgagnasjóði? Hann hefur í raun og veru það hlutverk að leggja grunnskólum til fé til námsgagnakaupa til þess að auka fjölbreytni og auka valmöguleika þeirra á að afla sér námsgagna. Ég held að þetta sé góð leið, góð nálgun og ég held að það sé skynsamlegt að gera þetta með þessum hætti, að setja þetta í þennan sjóð þar sem er þá meiri yfirsýn og ákveðna miðstýring á því hvað er gert varðandi fjármálin.

Það er breyting varðandi þennan sjóð er kemur að stjórninni. Það er verið að leggja til þá breytingu að það verði ekki lengur skipuð stjórn yfir sjóðnum. Í staðinn verði mennta- og barnamálaráðherra falin ábyrgð á því að sjóðurinn sé starfræktur. Ráðherranum er einnig heimilt að fela öðrum til þess bærum aðila starfrækslu sjóðsins, eins og það er orðað. Ég held að það sé sömuleiðis skynsamlegt að fara þá leið að vera ekki að festa okkur í því að ráðherrann einn sjái einhvern veginn um þetta heldur sé heimilt að annar aðili geti séð um að starfrækja þennan sjóð.

Þróunarsjóðurinn, virðulegur forseti, sem fjallað er um í III. kafla frumvarpsins, hefur það hlutverk að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð, þýðingu og útgáfu námsgagna fyrir þessi skólastig sem ég hef farið hér yfir. Eins og ég sagði áðan þá er það nýmæli að eitt af hlutverkum sjóðsins verður að stuðla að þýðingu námsgagna. Við Íslendingar erum nú oft, því miður, verð ég að segja, snillingar í því að reyna að finna upp hjólið sjálf en oftar en ekki hefur það nú verið fundið upp einhvers staðar og það er bara mikilvægt að við reynum einhvern veginn að besta það sem hefur komið fram og ef námsgögn eru til erlendis sem henta fyrir kennslu og falla undir aðalnámskrá og að þeim markmiðum sem stjórnvöld þess tíma ætla að ná þá er að sjálfsögðu eðlilegt að við notum það sem til er þannig að ég fagna því að þessi grein sé komin inn varðandi þýðingar.

Sömuleiðis er nýtt að tónlistarskólar geti sótt um stuðning úr þessum þróunarsjóði námsgagna. Ég verð að segja, virðulegur forseti, að mér finnst ánægjulegt að sjá að tónlistarskólarnir séu komnir hér inn og þeim sé gert svolítið hátt undir höfði. Hafandi verið í sveitarstjórn í 12 ár þá er það bara staðreynd að í allt of mörgum sveitarfélögum eru tónlistarskólarnir og hafa verið svolítil olnbogabörn í rekstri skólakerfis sveitarfélaga. Það er ánægjulegt að sjá og ég held að það sé góð þróun, og ég fagna henni, að við séum farin að tala um tónlistarskólana í þessu stóra samhengi. Stjórnarmönnum er fjölgað úr fimm í sjö í þessum ágæta sjóði. Sömuleiðis er þar ákveðin klásúla um að það megi ekki skipa sama einstaklinginn lengur en tvö starfstímabil sem ég held að sé skynsamlegt líka. Ég held að það sé mikilvægt og í raun og veru bara tek undir það sem kemur fram í þessu frumvarpi hvað það varðar, ég held að það séu ákveðin tækifæri í því að við séum — er ekki máltækið nýir sópar sópa best? Ef einstaklingar eru búnir að vera lengi í stjórnum, þó að því fylgi að sjálfsögðu ákveðin reynsla, þá er oft gott að fá nýtt fólk inn í slíkar stjórnir með nýja sýn og nýja vinkla og það þarf þá bara að passa það að mönnum sé ekki skipt út öllum í einu. En það er útfærsluatriði þannig að ég hef ekki áhyggjur svo sem af því en það er allt í lagi að koma orðum að því hér.

Í IV. kaflanum er það nýmæli að birta skuli útgáfuáætlun námsgagnanna sem er til fimm ára í senn og að hún sé unnin í samráði við skólana og þar með talið skóla sem eru starfræktir af sveitarfélögum og öðrum aðilum, atvinnulífi eða hagsmunaaðilum, t.d. félögum, samtökum eða stofnunum sem tengjast skólasamfélaginu og gerð og útgáfu námsgagna ásamt því að ráðherra skuli hafa samráð við börn og ungmenni um áætlun. Ég fagna þessu. Þarna sömuleiðis er verið að opna svolítið á það að tala um skóla sem eru starfræktir af öðrum aðilum og atvinnulífinu. Ég held að það sé mikilvægt að við fáum sem breiðasta sýn á þetta mál og ég fagna því að það er gert í þessum IV. kafla.

Virðulegur forseti. Frumvarpið sjálft er byggt á grundvelli þingsályktunartillögu um menntastefnu en á grundvelli hennar var lögð fram fyrsta aðgerðaáætlunin 2021–2024. Í þeirri ágætu þingsályktunartillögu voru settar fram níu meginaðgerðir, þar á meðal ein um vönduð náms- og kennslugögn fyrir allt menntakerfið. Í þeirri áætlun er vikið að því og þar kemur fram að aðgengi að vönduðu námsefni sé eitt lykilatriði gæðamenntunar og ég held að við séum öll sammála um það að námsefnið skipti að sjálfsögðu alveg gríðarlega miklu máli er kemur að gæðum menntunar. Markmið aðgerðar níu um vönduð náms- og kennslugögn er að auki gæði, fjölbreytni og aðgengi að náms- og kennslugögnum fyrir nemendur á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi sem og í framhaldsfræðslu með áherslu á stafræn námsgögn á íslensku, táknmáli og efni fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn eins og segir í frumvarpinu. Einnig kemur fram í þessu að einn af þessum verkþáttum aðgerðarinnar sé efling þróunarsjóðs námsgagna og námsgagnasjóðs, einmitt til að stuðla að þessari nýsköpun og fjölbreytni sem við svo sannarlega þurfum í námsefnisgerð og raun og veru vandaðri og þar af leiðandi markvissari útgáfu námsgagna.

Árið 2017 var sett af stað vinna af þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra með það að markmiði að endurskoða fyrirkomulagið í leik-, grunn- og framhaldsskólum er snýr að námsgagnagerð. Þessi hópur skilaði síðan af sér til ráðherra árið 2020 drögum að skýrslu. Þar var stefnt á að skila tillögunum fullmótuðum til ráðherra um áramótin 2020–2021 en í staðinn fyrir þessa vinnu var kominn farvegur innleiðingar menntastefnunnar sem við vorum að ræða á síðasta kjörtímabili, frá 2021–2030, sem er í raun og veru ein af megingerðum hennar. Þrátt fyrir að formlegum niðurstöðum starfshópsins hafi ekki verið skilað — eins og ég segi, þetta voru skýrsludrög sem voru afhent í september 2020 — þá kom ýmislegt fram í þeirri vinnu. Meðal annars kom í ljós að Ísland er kannski ekki alveg í samræmi við aðrar Norðurlandaþjóðir hvað varðar útgáfu námsgagna. Það er t.d. áhugavert að það var í raun og veru engin krafa og er engin krafa í lögum um sérstök námsgögn á leikskólastigi (Forseti hringir.) og námsgögn grunnskóla og námsgögn framhaldsskóla eru þar gjaldfrjáls, ólíkt Íslandi.

Virðulegur forseti. Ég sé að tíma mínum er lokið hér og ég á töluvert eftir í þessari ræðu minni. Ætli ég þurfi ekki bara að biðja um að verða settur aftur á mælendaskrá til að klára þessa ræðu?