156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hafa bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 229, um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, frá Ingvari Þóroddssyni, og á þskj. 209, um endurgreiðslur ferðakostnaðar sjúklinga og aðstandenda þeirra, frá Ingibjörgu Isaksen. Þá hefur borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 127, um styrki til fjölmiðla og tekjur Ríkisútvarpsins, frá Árna Helgasyni.