156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

Störf þingsins.

[15:03]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Það er áhugaverð frétt í Morgunblaðinu í dag þar sem er m.a. bent á að ríkisstjórnin virðist lítið mark hafa tekið á minnisblöðum Stjórnarráðsins um breytingar á veiðigjöldum. Til dæmis er varað við því í þessum minnisblöðum að líta til fiskmarkaðsverðs til stofna veiðigjalds á bolfiski því það gefi ekki rétta mynd af þeirri verðmyndun í heild sinni. Embættismennirnir vara sömuleiðis við þeirri hugmynd að miða við verð uppsjávarafla á norskum uppboðsmarkaði. Einnig er varað við því að betri gögn, greiningar og nákvæmir útreikningar séu ekki fyrir hendi. Það eru engar greiningar á áhrifum á sjávarútveg og sjávarútvegssveitarfélög sem liggja fyrir. Einnig má geta þess að embættismenn hvetja til víðtæks samráðs við samningu frumvarpsins og sömuleiðis í samráðsgátt. En því miður virðast hæstv. ráðherrar atvinnuvega og fjármála hafa ákveðið að virða þessar ábendingar að vettugi.