Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég stend hér í dag til að ræða hér á Alþingi um stöðu foreldra, foreldra í fæðingarorlofi og þeirra barnafjölskyldna sem standa í ströngu við rekstur heimilisins. Því hefur verið haldið fram hér í þingsal að niðurfelling samsköttunar milli skattþrepa í tilviki hjóna og sambýlisfólks komi fyrst og fremst niður á þessum hópi. Þetta er rangt. 95% þeirra sem nú nýta sér samsköttun milli skattþrepa eru í efstu tekjutíundinni og yfir 90% þeirra eru raunar í efri helmingi efstu tekjutíundarinnar. Og höfum það alveg á hreinu að hér er ekki verið að afnema samsköttun eins og hún leggur sig og sameiginleg nýting persónuafsláttar verður áfram við lýði. Það sem er hins vegar fyrst og fremst verið að gera er að við erum að fella brott skattafslátt sem hefur einkum ratað til tekjuhæstu heimila landsins. Raunar hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bent á að markmiðið með slíkri ívilnun er óljós, hún gagnist aðeins allra tekjuhæstu heimilunum og aðeins þeim þar sem einn aðili er tekjuhár en annar er tekjulágur. Hvað með pör þar sem báðir aðilar eru með lágar tekjur? Þá hefur verið bent á að þessi ívilnun sem við erum að afnema eykur á kynjamisrétti þar þeir sem njóta góðs af henni eru í 82% tilfella karlmenn. Þetta er fátæktargildra fyrir konur þar sem skattalegur hvati er til þess að hafa lágar tekjur þar sem tekjuhærri einstaklingurinn nýtur svo mikils ábata af skattafslættinum.
En beinum sjónum að þeim sem umræðan á að snúast um: Barnafólk, fólk í fæðingarorlofi, foreldrar sem berjast í bökkum við rekstur heimilisins. Ríkisstjórnin hefur verið skýr. Hún ætlar að styrkja afkomuöryggi fólks í fæðingarorlofi og bæta sérstaklega hag tekjulægri foreldra. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætlar að hækka lágmarksgreiðslur foreldra í fæðingarorlofi. Það er aðgerð sem skilar sér til efnaminni foreldra. Fæðingarstyrkur námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar verður hækkaður, enda er hann aðeins um 100.000 kr. á mánuði. Það er smánarleg upphæð. (Forseti hringir.)Þegar hefur verið lagt fram frumvarp um lengingu fæðingarorlofs fjölburaforeldra og foreldra sem veikjast á meðgöngu og frekari aðgerðir standa til sem skila sér beint til foreldra. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)