156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (M):

Virðulegi forseti. Góðir hv. þingmenn. Upplifunargeiri er ekki orð sem endilega hefur fest sig í tungumál okkar en hér er þó um að ræða stærsta vaxtarbrodd atvinnulífs í heiminum og þar með á Íslandi. Hér erum við að tala um allt sem lýtur að því að eiga svona umfram það að eiga til hnífs og skeiðar, allt sem maður getur leyft sér; ferðaþjónustan þ.m.t., að leggja út í ferðalög, njóta kvikmynda og tónlistar og menningar. Við áttum hér vísa kúnna í bíóhúsum landsins um árabil og gjafavaran var bækur og diskar og allt þess konar. En nú eru breyttir tímar. Á örfáum árum hefur orðið algjör markaðsbrestur í þessum heimum og tungumálið okkar, hornsteinn menningarinnar, er auðvitað í hættu. Það er markaðsbrestur í heimi bókmenntanna, tæknivæðingin þar hefur leitt til þess að bækur seljast minna en áður. Niðurhalið og streymið á þeim gefur litlar sem engar tekjur, helmingurinn af þeim tekjum fer til Svíþjóðar. Líkt og í Svíþjóð varð til lausnin Spotify fyrir tónlist. Þar fer 90% af tekjunum til 10% listamanna heimsins. Hin 90% berjast um það sem eftir er. Út af því er markaðsbrestur og við þurfum að standa vaktina og vera við því búin að það þurfi að grípa til einhverra ráða þannig að við höldum velli í þeim efnum sem öðrum. En það er líka markaðsbrestur, fyrirsjáanlegur og þegar orðinn, í ferðaþjónustunni. Bandaríkjamenn hafa ákveðið að ferðast meira innan lands og eru ekki að koma til Íslands. Bretar leggja leið sína til Noregs. Það kostar fé að afla fjár í þessu sem öðru (Forseti hringir.) og við þurfum að bæta verulega í ef við ætlum að viðhalda okkar straumi túrhesta til Íslands og huga að þessu sem öðru.