156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

Störf þingsins.

[15:12]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Að undanförnu hefur verið skipað í stjórnir nokkurra fyrirtækja í eigu ríkisins. Athygli hefur vakið sú nýja leið sem farin hefur verið við þessa skipun því að í stað þess að kjósa í stjórnirnar af kjörnum fulltrúum á þingi fól hæstv. fjármálaráðherra sérstökum valnefndum að útnefna aðila í stjórnir sem ráðherra valdi síðan úr. Markmiðið var að fara faglegri leið en áður. Athygli vakti að einungis fulltrúi Viðreisnar, flokks hæstv. ráðherra, var í fyrstu tveimur stjórnunum sem lifðu af þessa faglegu leið en enginn þeirra sem tilnefndir voru af öðrum stjórnmálaflokkum áður. Nýlega skipaði hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fjóra stjórnarmenn í fimm manna stjórn yfir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Allir þessir fjórir sem skipaðir voru af hæstv. ráðherra voru teknir af framboðslistum flokks hæstv. ráðherra eða beint úr stjórn flokks hæstv. ráðherra. Allir fjórir. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sér um stjórnsýslu af hálfu hins opinbera þegar kemur að húsnæðis- og mannvirkjamálum. Hún hefur umsjón með Húsnæðissjóði. Hún hefur m.a. reiknað út þann grundvöll sem fasteignagjöld eru reist á. Flokksvæðing á opinberri stofnun. Fagráða, segir hæstv. fjármálaráðherra. Er þetta stefna ríkisstjórnarinnar? Verður þetta svona í fleiri stofnunum? Stjórnmálaflokkarnir verða að fá að ráða því hverjir sitja í þessum stjórnum ríkisfyrirtækja fyrir þeirra hönd án atbeina Viðreisnar eða annarra stjórnmálaflokka. Stjórnmálaflokkarnir starfa í lýðræðislegu umboði kjósenda og bera ábyrgð á því að tilnefna hæft fólk til starfa í stjórnum ríkisfyrirtækja.