156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

Störf þingsins.

[15:17]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla aðeins að gera hér að umtalsefni í dag stöðu lögreglunnar og kannski þá sérstaklega stöðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Það er öllum ljóst að þau verkefni sem lögreglan fæst við hafa töluvert breyst á síðustu árum. Meiri harka, aukið ofbeldi og stærri og oft á tíðum flóknari mál eru sá veruleiki sem við okkur blasir. Þetta sjáum við í fjölmiðlum alla daga. Í samtölum við lögregluna er ljóst að við núverandi ástand verður ekki unað öllu lengur enda eykur þetta aukna álag á starfsmenn lögreglunnar, sem þeir finna fyrir á hverjum degi, hættu á brotthvarfi úr starfi, kulnun og óöryggi í vinnunni þar sem óvíst er hvenær liðsauki berst í þeim málum sem eru þess eðlis að þess sé þörf. Þeim málum, virðulegur forseti, fer ört fjölgandi.

Öryggi lögreglumanna þarf að vera eins tryggt og kostur er og lögreglunni þarf að vera gert kleift að sinna þeim verkefnum sem ætlast er til að lögreglan sinni á hverjum tíma. Að því sögðu er ljóst að sú staða sem uppi er og hefur verið um nokkurt skeið, þar sem fjölgun lögreglumanna hefur ekki haldið í við þær áætlanir sem gerðar hafa verið, er mikið áhyggjuefni. Í þessari umræðu er mikilvægt að við horfum til framtíðar og leitum lausna um það hvernig við getum snúið þessu við. Þar vega þungt starfsumhverfi, öryggi, launakjör og menntun lögreglumanna.

Við þurfum, virðulegur forseti, að fara að horfa út fyrir kassann. Við þurfum að rýna það kerfi sem við erum með nú og velta við öllum steinum í leit okkar að lausnum. Ég held að við þurfum m.a. að skoða inntökukerfi inn í lögreglunámið og finna farveg fyrir þá fjölmörgu ómenntuðu lögreglumenn sem eru við störf innan lögreglunnar og gefa þeim tækifæri til að mennta sig í faginu. Þar, virðulegur forseti, er mikill mannauður.