156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

Störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það er gott að vera komin aftur til starfa hér á Alþingi eftir að hafa verið við EES-hagsmunagæslu á meginlandinu. Ég verð að segja að það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með, með aðstoð tækninnar, góðum og kröftugum umræðum kröftugra háttvirtra kollega minna hér. Ég kom nú upp hér í síðustu viku til að ræða m.a. starfsskyldur hv. þingmanna, en hér eru sannarlega hv. þingmenn sem rækja þær og stuðla að opinni og lýðræðislegri umræðu. Vel gert. Í fjarveru minni við störf erlendis fékk ég síðan svar við fyrirspurn minni til hæstv. forsætisráðherra um kostnað við starfshóp hæstv. ríkisstjórnar um hagræðingu í ríkisrekstri. Hópurinn starfaði í nokkrar vikur, frá 21. janúar síðastliðnum og skilaði svo af sér 4. mars. Kostnaðurinn við hann nam 7,3 millj. kr. Við sem skiluðum spennt inn fjölmörgum tillögum til hópsins urðum sannarlega fyrir vonbrigðum þegar við áttuðum okkur á því að það ætti ekki að miða hærra, m.a. virtust vinsælustu tillögur almennings sem vörðuðu Ríkisútvarpið hreinlega hafa gufað upp. Þar er auðvitað farið á mis við mikil tækifæri til hagræðingar. En ég gefst ekki upp og nú hef ég sent inn nýja fyrirspurn til hæstv. ráðherra ríkisstjórnarinnar um svokallaða stoðþjónustu, hversu margir starfi við hana hjá ríkinu og hvort verið sé að nýta miðlæga þjónustu sem er þegar í boði. Þarna er ég að kalla fram upplýsingar um t.d. upplýsingafulltrúa og mannauðsstarfsfólk. Það virðast nú varla geta komið saman tveir opinberir starfsmenn án þess að þeim sé skipaður upplýsingafulltrúi. En ég er sem sagt boðin og búin til að aðstoða hæstv. ríkisstjórn og er uppfull af góðum hugmyndum.