Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Skattar verða ekki hækkaðir á almenning. Þessi setning dundi á landsmönnum fyrir kosningar og aðrar keimlíkar úr herbúðum núverandi ríkisstjórnarflokka. Nú boðar ríkisstjórnin hins vegar ýmsar breytingar á skattkerfinu, öllum til hækkunar. Vandast leikurinn þegar kemur á daginn að aldrei stóð til að efna gefin loforð. Andspænis þeim vanda hafa valdamenn tvo kosti; að gangast við því að innstæðulaus loforð hafi verið gefin, eða það sem nú er orðið að þjóðaríþrótt ríkisstjórnarinnar, að skilgreina loforðið á braut. Reynt er til hins ýtrasta að hylma yfir raunverulegar fyrirætlanir með orðaleikjum. Skattahækkanir eru nú leiðréttingar og almenningur er ekki lengur allir landsmenn, bara sumir.
Sannleikurinn er hins vegar sagna bestur. Á síðustu vikum kynnti ríkisstjórnin hvorki meira né minna en þrjár tillögur að skattahækkunum. Í fyrsta lagi hyggst ríkisstjórnin auka skattbyrði fjölskyldufólks um allt land, fólk sem rekið hefur sitt heimili sem eina heild, með fyrirhugaðri niðurfellingu samsköttunar. Í öðru lagi liggur fyrir Alþingi frumvarp sem felur í sér að sveitarfélögin verði í reynd neydd til að hækka útsvar. Auðsýnilega er ekki um annað að ræða en hótun í garð þeirra sveitarfélaga sem sýnt hafa ábyrgð í rekstri, en útsvarshækkun er skattahækkun á alla. Í þriðja lagi hyggst ríkisstjórnin stórhækka veiðigjöld á sjávarútveg undir yfirskini leiðréttingar og réttlætis. Þó að ríkisstjórnin reyni eftir fremsta megni að fela skattahækkanir með orðaleikjum ætti engum að dyljast að ríkisstjórnin lítur á fólkið og fyrirtækin í landinu sem óþrjótandi tekjulind, vasa sem hægt er að seilast sífellt dýpra og dýpra ofan í. Engu er líkara en að það hafi verið ein af hagræðingartillögum ríkisstjórnarinnar að hagræða sannleikanum. Ríkisstjórnin kallar skattahækkanir leiðréttingar. Það er ekki að leiðrétta nokkurn skapaðan hlut. Hún er að villa um fyrir fólki og víkjast undan eigin ábyrgð. Það á að segja hlutina eins og þeir eru. Skattar verða nefnilega hækkaðir, bara með öðrum orðum.