Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Við setjum ýmiss konar lög, t.d. lög um peningaþvætti sem eru góð og gild, en það er oft spurning um framkvæmdina á þessum lögum. Það er sérstaklega fylgst með fyrirtækjum, litlum sem stórum, til að tryggja að starfsemi þeirra feli ekki í sér hættu á peningaþvætti. Sú skylda er lögð á herðar ýmissa aðila að gera áreiðanleikakannanir. Þið hafið lent í því í bönkum að þurfa að láta ökuskírteini af hendi svo það sé hægt að ljósrita þau og þar með eruð þið orðin góðir aðilar. Þessi skylda hvílir m.a. á aðilum sem selja bókhaldsþjónustu. Þeir geta að vísu keypt utanaðkomandi þjónustu, þ.e. aðgang að hugbúnaði til að gera þessa könnun og það tekur um 20 mínútur að gera einfalda könnun á einstaklingi vegna framtalsgerðar. Áreiðanleikakönnun þarf síðan að endurtaka á tveggja ára fresti.
Ég átti einu sinni fund með starfsmönnum ríkisskattstjóra þar sem ég kom með eftirfarandi dæmi: Einhverjir einstaklingar taka sig til og stofna fyrirtækið Eiturlyfjainnflutningur og vændisstarfsemi ehf. Það gengur vel í gegn vegna þess að allir pappírar eru rétt útfylltir, öll gjöld eru greidd, 500.000 kr. hlutafé o.s.frv. Þar sem allt er komið í lag þar þá er næsta skref t.d. að ráða sér bókara, og hvað gera þeir? Jú, stökkva út á næstu bókhaldsstofu eða endurskoðunarskrifstofu og vilja fá keypta þjónustu. En nei, stofurnar þurfa að fara fram á áreiðanleikakönnun. Til að komast hjá því er ráðið einfalt: Ráðum bara bókara, þá þarf ekki að gera þetta. Ég vil leggja til að við förum aðeins að hugsa þetta og látum áreiðanleikakönnunina fara fram við stofnun á fyrirtækinu, hjá ríkisskattstjóra. Bókarar og endurskoðendur geta síðan í gegnum sína vinnu fylgst með eins og þeim er ráðlagt að gera og passað upp á það að allt sé rétt og gott.