156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

Störf þingsins.

[15:31]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það var aðdáunarverð, framsýn og hugrökk ákvörðun sem var tekin vorið 2009 af ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Reykjavíkurborg um að ljúka við byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Áætlaður kostnaður við að ljúka við bygginguna var 14,5 milljarður kr. á þávirði og alls ekki einhugur um að nota svo mikla fjármuni í bygginguna þegar áskoranir þess tíma blöstu við í efnahagslífi landsins. En Harpa, menningarhús þjóðarinnar, opnaði árið 2011 og hefur glætt líf landsmanna í 14 ár. Halldór Guðmundsson, þáverandi forstjóra Hörpu, fjallaði um þessa mikilvægu ákvörðun í grein í Morgunblaðinu í desember 2012 og sagði, með leyfi forseta:

„Vel má vera að húsið sé of stórt, og það hefur sannarlega verið „heljar grýla sparnaðarmönnum“, en mun einhver spyrja að því eftir áratug eða svo, ef vel tekst til með rekstur þess?“

Nú má segja að hægt sé að svara þessari spurningu því í morgun var kynnt í Hörpu ný skýrsla sem var unnin af hagfræðingnum Ágústi Ólafi Ágústssyni fyrir hönd Rannsóknarseturs skapandi greina, um hagræn áhrif Hörpu, svokölluð Hörpuáhrif. Helstu niðurstöður skýrslunnar sýna að hagræn áhrif Hörpu eru umtalsverð en í þeim felast m.a. árleg verðmætasköpun, virðisauki upp á 10 milljarða kr. og heildarskatttekjur upp á 9 milljarða. Það er rúmlega 15 sinnum hærri upphæð en hið sérstaka rekstrarframlag sem ríki og Reykjavíkurborg leggja nú til Hörpu. Í skýrslunni kemur líka fram að um 650 störf megi rekja með beinum og óbeinum hætti til starfseminnar og að verðmætasköpun í starfsemi Hörpu sé fimm sinnum hærri en rekstrarkostnaður hússins.

Virðulegi forseti. Ég fagna þessari skýrslu sem sýnir þjóðinni, eiganda hússins, að Harpa er hverrar krónu virði, svo ekki sé talað um menningarleg og samfélagsleg áhrif sem eru að öllum líkindum ómetanleg.