Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Undirritaður, ásamt nokkrum þingmönnum, er kominn úr heimsókn til þeirrar góðu borgar, Brussel, þar sem nokkrar alþjóðastofnanir voru heimsóttar. Það er gaman að nefna það að á mánudaginn birtist skoðanakönnun sem sýndi afstöðu þjóðarinnar til aðildar að tveimur af þessum alþjóðasamtökum, þ.e. Evrópusambandinu og NATO. Niðurstaða könnunarinnar varðandi Evrópusambandið er sú að 44% þjóðarinnar eru hlynnt aðild Íslands að Evrópusambandinu og 36% á móti. Afstaða til þess að halda aðildarviðræðum áfram hefur ekki verið mæld nýlega. Það mætti ætla að hún sé nokkuð hærri. Það væri rökrétt að ætla að vilja sækja um aðild að samtökum sem maður vill vera aðili að. Afstaða til atkvæðagreiðslunnar sjálfrar hefur verið mæld og hefur þá verið nokkuð hærri heldur en þetta. Þannig að ég vil bara nefna að ríkisstjórnin er í góðu flútti við vilja þjóðarinnar í þessum málum.
Annað sem ég vil nefna er skoðanakönnun sem sýnir að stuðningur við NATO er gríðarlega mikill hér á landi um þessar mundir. Það eru 71% þjóðarinnar sem styðja aðild að NATO, sem er með því hæsta sem hefur sést, og 12% sem eru á móti. Annað sem vekur líka athygli er að það er yfirgnæfandi stuðningur meðal stuðningsmanna allra flokka, meira að segja flokka sem ekki lengur eru hér á Alþingi og hafa í gegnum tíðina haft það á stefnuskrá sinni að vilja ekki vera í Evrópusambandinu. Mér þykja þetta nokkur tíðindi og nokkuð góð tíðindi, verð ég að segja. — Forseti. Ég hef lokið máli mínu.