tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég vænti þess nú eins og vant er að þingheimur standi saman um þær aðgerðir sem við höfum gripið til vegna þessara jarðhræringa sem hafa plagað Grindavík og íbúa þar. Ég vil samt benda á að þar sem málið fer til nefndar í dag, að mér skilst, eftir umræður í gær, að það verði skoðað enn frekar hvort hægt sé að koma til móts við þau sjónarmið sem hér voru uppi í umræðunni þá. En ég vil líka segja það að við í Framsókn styðjum málið eins og það lítur út núna, jafnvel þó að ekki yrðu gerðar þær breytingar sem við lögðum til hér að yrðu skoðaðar en til þess þarf nefndarfund. En ég hvet þingheim til að styðja málið engu að síður.