tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Hér er mikilvægt mál á ferðinni þar sem gefin er heimild til að falla frá fasteignagjöldum af því að það eru margir fasteignaeigendur, bæði einstaklingar og fyrirtæki, sem eru ekki í aðstöðu til að geta greitt fasteignagjöldin. En eins og ég benti á í 1. umræðu og hér við 2. umræðu þá var ekki öllum spurningum svarað í þessu máli nema bara um framlenginguna á fasteignagjöldunum sem Grindavíkurbær mun bera allan kostnaðinn af. En hvernig Grindavíkurbær getur svo varið sig rekstrarlega séð — þeim spurningum var ekki svarað. Það eru þær athugasemdir sem við höfum verið að gera hér við 1. og 2. umræðu og við höfum ekki séð nein áform um eða nein svör eða neitt plan hjá þessari ríkisstjórn um og það er það sem við höfum gert ágreining hér um og vonumst til þess að hæstv. ríkisstjórn lagi hið fyrsta.