tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég hélt eina ræðu við 1. umræðu þessa máls og líka eina ræðu við 2. umræðu þessa máls og var þá að brýna ríkisstjórnina í því að koma með framtíðarplan fyrir Grindavík. Ég styð þetta mál auðvitað eins og ég lýsti í ræðu í gær, en það voru margar aðgerðir sem við þurftum að ráðast í á síðasta kjörtímabili eftir eldsumbrotin og þau heyra undir nokkra ráðherra. Hér er bara einn angi af því og ríkisstjórnin er svo sem búin að gefa út skilaboð um að ætla ekki áfram í stuðningsaðgerðir. En það eru fleiri mál og ég ætla að minna sérstaklega á málið varðandi varnarveggina í Svartsengi þar sem við erum með lög sem gilda í eitt ár í viðbót, eða tæplega eitt ár í viðbót, og það þarf að huga að þessum þáttum. Þannig að ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn til að koma með heildstætt plan um framtíðaráform okkar varðandi þennan góða bæ og hvernig við ætlum að standa með Grindvíkingum og standa með Grindavík.