tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Í tilefni af orðum hv. formanns umhverfis- og samgöngunefndar, Guðbrands Einarssonar, vil ég árétta að þegar þessi heimild var sett fyrst á — og Grindavíkurbær ber einn kostnaðinn af því að fresta álagningu fasteignagjalda — var gerð undanþága og bráðabirgðaákvæði um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga í sama frumvarpi til þess að mæta minni tekjum Grindavíkurbæjar. Það er það eina sem var ekki framlengt í þessu máli og tekið sérstaklega fram í greinargerðinni. Og ríkisstjórnin hefur ekki haft nein áform eða nein svör um það þó að Grindavík kallaði eftir því í þessu máli, og það er það sem við erum að gagnrýna. Þetta er ekki bara um framlenginguna, þetta er líka um það að ákveða að framlengja ekki stuðninginn varðandi Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.