námsgögn.
Forseti. Við áttum ofboðslega góða umræðu um þetta mikilvæga mál hér í gærkvöldi og ég ætla að endurtaka hamingjuóskir og þakkir til hæstv. ráðherra fyrir að vera kominn með þetta mál hingað inn og ítreka mikilvægi þess. Ég ætlaði að fá að hnykkja örstutt á því sem mér finnst lykilatriði í þessu máli og kannski lykilatriði að hv. allsherjar- og menntamálanefnd skoði sérstaklega. Það lýtur að því að það er mikilvægt að tryggja að ekki verði til einhvers konar ríkisrekin bókaútgáfa undir hatti Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Hugmyndafræðin var að mínu viti, og það var það sem við vorum að leggja upp með þegar við vorum að samþykkja lögin um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, að þetta væri miklu frekar gæðavottunaraðili. Gæðavottunaraðili á efni sem einkaaðilar væru að framleiða, hvort sem það væri nýsköpun á sviði einhverra tæknilausna eða hefðbundinna bóka eða annars þess háttar, ásamt því auðvitað að bera ábyrgð á því að tryggja að það sé til námsefni þannig að í einhverjum tilfellum þurfa þau mögulega að bjóða slíkt út og reyna að kalla þá sem flesta að því borði. Þetta held ég að sé algjört lykilatriði.
Ég vil líka beina því til hv. allsherjar- og menntamálanefndar varðandi reglugerðarheimildina sem getið er um í frumvarpinu að það tíðkast oft að við óskum eftir því að fá drög að slíku inn í nefndina. Ég geri ráð fyrir því að ráðuneyti hæstv. ráðherra sé farið að vinna að þessu þannig að það varpar betra ljósi á málið ef hægt er að fá það í umfjöllun í nefndinni, að vera með reglugerðina. Ég hygg líka að þessi forgangsröðun verði stóra málið og hvernig eigi að útfæra þetta með gjaldfrjálsu námsgögnin. Þá vísa ég sérstaklega í umræðuna sem við áttum í gær varðandi bækur annars vegar og áhöld og tæki hins vegar, varðandi 18 ára aldurinn, skólaskylduna, fæðingardag og allt þetta. Þetta er aðeins flókið og ég vil bara beina því til nefndarinnar að huga sérstaklega að þessu og vænti þess að hæstv. ráðherra og ráðuneyti hans verði í góðu samstarfi við þingið þegar kemur að þessari útfærslu.
Að því sögðu þá er líka talað um útgáfuáætlun og það var einhver sem nefndi það í ræðu í gær að það gæti verið ástæða til að þingið kallaði eftir þessari útgáfuáætlun eða að hún yrði með einhverjum hætti væntanlega birt opinberlega en fengi líka mögulega einhverja þinglega umfjöllun og umræðu. Mig langar að beina því til nefndarmanna í hv. allsherjar- og menntamálanefnd hvort það ætti að skoða, sem við höfum oft gert þegar það er verið að fara í svona ný og stór og mikilvæg verkefni, að vera með einhvers konar bráðabirgðaákvæði, setja inn einhvers konar bráðabirgðaákvæði sem kallar á úttekt eða skýrslu eftir eitt ár, kallar eftir því að sjá framvindu þessa verkefnis, því að eins og ég fór yfir hér í gær er ekki hægt að lesa neitt út úr fjármálaáætluninni hvað þetta varðar. Þarna er í þessum málaflokkum samdráttur um 4 milljarða en engu að síður kallar það frumvarp sem við erum með hér í höndunum á fjárútlát. Það kallar á mikla forgangsröðun innan ramma hjá hæstv. ráðherra og þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt fyrir hv. allsherjar- og menntamálanefnd að fylgja málinu eftir. Það hefur í gegnum tíðina of oft borið á því að við höfum afgreitt góð mál með góðum vilja, bæði frá hæstv. ráðherrum og auðvitað hv. þingmönnum sem taka þátt í að afgreiða þau, en svo raungerist ekki það sem markmið frumvarpanna gengur út á.
Mér finnst þetta mjög mikilvægt, þetta er lykilatriði. Þegar við erum að tala um skólamálin okkar þá vitum við að það er verulegur skortur á meira námsefni, gæðanámsefni, fjölbreyttara námsefni, bæði vegna þess að fólk er með mismunandi bakgrunn hvað íslenskuna varðar og annað þess háttar en líka út af því að við erum að tala um fjölbreyttari námsleiðir og nú erum við að taka framhaldsskóla líka inn í þetta. Þetta er því stórt og mikið verkefni og ég myndi beina því til hv. allsherjar- og menntamálanefndar að skoða það alvarlega hvort ekki væri ástæða til að setja inn einhvers konar bráðabirgðaákvæði, sem er alþekkt að við gerum hér, til að kalla eftir skýrslu, upplýsingum svo að þingið sé mjög meðvitað um framgang þessara mála sem hér eru undir.
Að því sögðu óska ég allsherjar- og menntamálanefnd hins besta í vinnu með þetta mikilvæga mál og vona að þetta verði hér að lögum í vor.