námsgögn.
Frú forseti. Ég var ekki búin þegar ræðutíminn var búinn í gær og ég sé að hv. þm. Sigurjón Þórðarson er hér í salnum og hann var nefnilega með ágætispunkt og gott að umræðan fór fram til að hann gæti komið með ábendingu til mín varðandi rugling milli námsgagnasjóðs og þróunarsjóðsins. Ég ætla að byrja aðeins þar. Það sem mig langar að ræða varðandi námsgagnasjóðinn er, eins og hv. þm. Sigurjón Þórðarson benti á, að það á að vera frekar einfalt, þ.e. ráðherra á að setja reglugerð og úthlutun fer fram eftir stærð skóla og góðar reglur í kringum það. Hins vegar þá sjáum við ekki í þessu frumvarpi hvernig það er. Hér kemur fram varðandi námsgagnasjóðinn að það er ekki hægt að skjóta ákvörðunum til æðra stjórnvalds þannig að ef reglugerðin sem ráðherra setur er ekki nógu góð þá erum við í vandamálum. Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að við fáum að sjá reglurnar, sjá reglugerðina, þannig að hægt sé að bregðast við fyrst það er ekki er hægt að skjóta ákvörðunum til æðra stjórnvalds. Ég beini því til hæstv. ráðherra að það þarf að vera sátt um reglurnar áður en úthlutun á sér stað. Þetta var um námsgagnasjóðinn. Stjórnsýslan ætti að vera betri ef þetta er allt skýrt.
Varðandi þróunarsjóðinn þá er það kannski svolítið svipað. Ráðherra er svolítið mikið, og á ákveðinn hátt er það eðlilegt, með endanlegt vald. Það stendur að það skuli taka mið af stefnu stjórnvalda og útgáfuáætlun námsgagna. Við vitum í mesta lagi fjögur ár í einu með stefnu stjórnvalda þannig að þetta þarf að vera svolítið almennt þannig, held ég, sem er hægt að ná góðri sátt um.
Ég var komin að umfjöllun um einstakar greinar frumvarpsins, við vorum komin þangað í gær. Mig langaði til að fara í 2. gr., en um hana segir:
„Til viðbótar við þau markmið að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna er lagt til að jafnframt verði miðað að því að tryggja gæði námsgagna.“
Gæði námsgagna eru náttúrlega númer eitt, tvö og þrjú og það ætti að vera í gegnum allt þetta þannig að gæði námsgagna séu í lagi. Þó að það sé gott að sjá það hér þá vona ég að það sé nánast sjálfgefið og ég vona að það verði meginstefið.
Ég ætla ekkert að ræða 3. gr., en ég ætla aðeins að hoppa yfir í 4. gr. Um hana segir:
„Lagt er til það nýmæli að námsgögn í leik-, grunn- og framhaldsskólum skuli vera gjaldfrjáls vegna náms barna að 18 ára aldri.“
Við erum búin að fara aðeins yfir þetta en ég hallast að því, alveg sama hvernig ég ímynda mér að útfærslan geti verið, að þetta 18 ára aldursviðmið sé virkilega erfitt í framkvæmd. Eins og við ræddum í gær: Verður þetta ekki bara að miðast við framhaldsskólastigið? Börn eru 18 ára, ýmist í 1., 2. eða 4. bekk og svo er einhver 19 ára sem er í sama bekk, á hann ekki að fá námsgögn en hinn á að fá námsgögn? Við þurfum eitthvað að skoða þetta og beini ég því til allsherjar- og menntamálanefndar að skoða þetta sérstaklega vel.
Svo er hér 6. gr., ég sleppi alveg 5. gr. Hér kemur fram, með leyfi forseta, að í stað þess að fjallað sé um að sjóðurinn tryggi val grunnskóla um námsgögn er ákvæðið orðað þannig að sjóðurinn auki val grunnskóla um námsgögn. Markmiðið er að opna ákvæðið enn frekar í þá átt að grunnskólar horfi til fjölbreytileika námsefnis. Ég velti aðeins fyrir mér hvað það þýðir að opna enn frekar. Við vorum að tala um gæði námsgagna og það þarf að passa að þó að við opnum það þá bitni það ekki á gæðunum. Ég er hlynnt því að opna þetta og ég er hlynnt því að við treystum kennurum til að meta hluti og þar með talið hluti eins og hvort við höfum t.d. fjölskylduföstudag, þ.e. að móðir eða faðir komi kannski og kynni sína starfsemi, hvar þau vinna. (Forseti hringir.) Það eru ákveðin námsgögn, að þau upplifi hvernig lífið fyrir utan skólana er.
Frú forseti. Er ég búin með tímann? Ég bið um að forseti setji mig aftur á mælendaskrá.