námsgögn.
Virðulegur forseti. Ég ætla að halda áfram frá því sem frá var horfið í gærkvöldi þegar ég kláraði fyrri hlutann af minni ræðu. Ég ætla að byrja hins vegar á því, virðulegur forseti, sem ég gleymdi í gærkvöldi. Hafandi verið í þinghúsinu og hlustað á þær fjölmörgu ræður sem hér fóru fram um þetta mál, ágætisumræðu, þá gleymdi ég því í upphafi ræðu minnar í gær að í raun og veru hæla hæstv. ráðherra fyrir að sitja undir þessari umræðu og taka þátt í henni þegar ráðherranum fannst tilefni til. Það er til eftirbreytni, virðulegur forseti, og ég ætla að þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir að sýna okkur þá virðingu að vera hér undir allri þessari umræðu þó að ég viti það og geri mér grein fyrir að hún er búin að vera löng.
Ég ætla sömuleiðis að byrja, áður en ég fer kannski beint í ræðuna, á því að taka undir það sem kom fram hjá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur varðandi aldurstakmarkið. Ég er alveg sammála því, ég held að þetta geti orðið svolítið snúið í framkvæmd, að miða við 18 ár, þótt ég skilji fullkomlega af hverju við erum að setja það inn í lagatextann. Ég held bara að það geti orðið erfitt fyrir skólana að átta sig á því hvenær þessir nemendur eiga afmæli og hvenær þeir eru ekki lengur gjaldgengir í það að fá námsgögn, hvort það er ekki bara hreinlegra að miða þetta við þá skólastigið, framhaldsskólastigið, en ég er alveg fullviss um að þessi umræða verður tekin inni í nefndinni og þessar athugasemdir hafa komið hér fram. Ég vildi bara taka undir þetta og fagna því að þessi umræða sé komin.
Svo ég haldi nú áfram þar sem frá var horfið í gærkvöldi þá var ég kominn hér að því að megintilgangur sameiningarinnar, og þá er ég að tala um þessar stofnanir sem hér hafa verið sameinaðar, var í raun og veru að styrkja stjórnsýslu menntamála, styrkja þjónustu við skóla og ná fram jákvæðum samfélagslegum samlegðaráhrifum, faglegum jafnt sem rekstrarlegum. Það kemur hins vegar fram í skýrslunni sem var gerð að breytingarnar hafi haft neikvæð áhrif á útgáfu námsgagna. Það er náttúrlega verið að bregðast við því í þessu sem er vel. Þær ábendingar og að einhverju leyti umsagnir við það kerfi sem við erum með núna hafa komið fram víða. Til dæmis má nefna viðhorfskannanir sem hafa verið framkvæmdar meðal kennara og skólastjórnenda í tengslum við ýmiss konar stefnumótun um menntun og við undirbúning nýrrar þjónustustofnunar á sviði menntamála, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, en ákallið hefur verið m.a. um að styðja þurfi betur við útgáfu og miðlun námsgagna á öllum skólastigum, þar með talið að tónlistarskólar fái aðgengi að þróunarsjóði námsgagna og námsgögn séu í meira mæli notuð til þess að tryggja jafnræði milli nemenda óháð félagslegri og efnislegri stöðu eins og ég fór hér ágætlega yfir í ræðu minni í gærkvöld, og enn og aftur, af því að það er svo langt síðan ég flutti þessa ræðu hér, að fagna því að tónlistarskólarnir séu komnir hér undir.
Það má líka benda á að velferðarvaktin eða stýrihópur sem hefur það hlutverk að fylgjast með félagslegri og fjárhagslegri stöðu einstaklinga og fjölskyldna í landinu, sú ágæta stofnun, velferðarvaktin, hefur einmitt bent á það og beint því til þá okkar að vinna að því að gera í raun og veru námsefni nemenda í framhaldsskólum gjaldfrjálst og stuðla þannig meira að jöfnuði í skólakerfinu.
Virðulegur forseti. Ég sé að tími minn er enn og aftur að renna út þannig að ég held að ég ætli bara að láta staðar numið í bili (Forseti hringir.) og skoða það hvort ég kem enn upp og reyni að klára þessa ræðu sem ég held að sé að verða hálfómögulegt.