námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég fagna þessu frumvarpi sem hér er verið að fjalla um og er ánægð að geta tekið þátt í þessari umræðu þar sem ég sit nú í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Áður en ég hef mál mitt þá langar mig til þess að byrja á því hér formlega að óska hæstv. ráðherra til hamingju. Ég bind miklar væntingar og vonir við það að hann bæði verði farsæll í starfi og nái að lyfta því grettistaki sem þarf að lyfta í menntamálum. Hæstv. ráðherra hefur einmitt talað um það að hann brenni fyrir menntamálum og ég veit að við munum eiga ánægjulegt samstarf í allsherjar- og menntamálanefnd í tengslum við öll þau mál sem tengjast menntamálum á Íslandi.
Hæstv. forseti. Við erum hérna að ræða frumvarp til laga um námsgögn og má segja í rauninni að þetta mál komi svolítið að kjarna samfélagsins um það hvernig við undirbúum okkar börn og ungmenni og líka fullorðna fyrir lífið. Þetta kemur að menntun barna og aðgengi barna að námi og jöfnun tækifæra. Ég hef nú sagt það áður hér í ræðustól að menntakerfið okkar á Íslandi, skólarnir okkar, er eitt besta jöfnunartæki sem við höfum til að jafna stöðu allra um land allt. Þetta frumvarp sem hér er verið að leggja fram er bara mjög jákvætt, metnaðarfullt, en það kallar samt líka auðvitað á umræðu um hvað má gera betur á uppbyggilegan hátt. Það er nefnilega mikilvægt að við séum ekki að afgreiða þetta mál bara sem formsatriði heldur er þetta stefnumarkandi ákvörðun og ákvörðun sem mótar í rauninni aðgang okkar og barnanna okkar að námi og námsgögnum næstu kynslóðir.
Frumvarpið byggir á þeirri grunnhugsjón að börn eigi rétt á gjaldfrjálsum námsgögnum, hvort sem þau eru í leik-, grunn- eða framhaldsskóla að því marki að þau séu innan 18 ára aldurs. Þetta er auðvitað bara mikilvægt réttlætismál og stuðlar að því að draga úr mismunun byggða og líka heimila. Við vitum að það standa ekki allir jafnir hvað varðar fjárhag heimila og þá kemur enn og aftur að mikilvægi þessa jöfnunartækis sem skólarnir okkar eru. Það er líka mikilvægt að við skoðum málið svona í ljósi þróunar síðustu ára. Þegar varaformaður Framsóknar, Lilja Alfreðsdóttir, var mennta- og barnamálaráðherra þá hófst þessi vinna einmitt af festu, að skoða það hvernig námsgögn eru, hvernig þau eru útgefin og hvernig þau eru unnin. Við í Framsókn höfum alla tíð talað fyrir því að skólakerfið standi undir væntingum um jöfnuð, sveigjanleika og einstaklingsbundinn stuðning. Það er viðhorf sem gengur út frá því að það eigi ekki bara að skapa umgjörð heldur líka að tryggja að úrræðin í rauninni skili sér til allra.
Virðulegi forseti. Þó að viljinn í frumvarpinu hérna sé skýr þá vekur það kannski upp einhverjar spurningar þegar maður les greinargerðina, eins og t.d. um námsgögnin, hvernig hugtakið námsgögn er skilgreint. Nær það til stafrænna lausna? Nær það til ritfanga, tækja eða eingöngu til hefðbundinna bóka? Við lifum á tímum þar sem mörg verkfæri sem við notum til náms eru stafræn og líka lifandi og ég veit að kennarar eru að nýta sér það í auknum mæli núna. Það er tæknin sem gefur okkur tækifæri einmitt til að nálgast einstaklingana út frá þeim stað sem þeir eru á hverju sinni. Einstaklingarnir eru ólíkir og eru á ólíkum stað og ég tala nú ekki um núna þegar við búum í samfélagi sem hefur tekið örum breytingum varðandi samsetningu og fjölþjóðlega stöðu. Kennarar standa frammi fyrir því að vera með jafnvel 20–25 nemendur í bekk, ansi mörg tungumál jafnvel töluð þar inni og ýmsar áskoranir líka varðandi einstaklingsmiðuð úrræði. Við erum með einstaklingsmiðað nám líka sem þarf að nálgast af festu og það er rosalega mikilvægt að kennararnir hafi þau verkfæri sem þarf til þess að mæta einstaklingunum svo að við séum raunverulega að fylgja því eftir að hafa hérna einstaklingsmiðað nám. Einstaklingsmiðað nám hljómar mjög vel en sem fyrrverandi kennari þá verð ég að segja að þó svo að allir séu að leggja sig fram við að reyna að mæta einstaklingum þar sem þeir eru þá höfum við ekki haft burði til þess, ekki þann fjárhagslegan stuðning sem þarf og ekki heldur þá sérfræðiþjónustu sem þarf til að styðja við kennarana á gólfinu til þess að geta mætt einstaklingunum þar sem þeir eru. Þetta er hægt og ég veit að það er vilji fyrir því en það þarf líka að taka þessa umræðu, hvort við séum raunverulega að ná að sinna þessu einstaklingsmiðaða námi. Ég held að skýrari umfjöllun um einmitt hugtakið námsgögn gæti hjálpað til og styrkt frumvarpið enn frekar.
Það er líka ýmislegt annað sem mig langar að ræða og þar á meðal eru þessi aldurstakmörk, aldursviðmið. Nú tók ég ekki þátt í umræðunni hér í gær þar sem ég var erlendis á vegum þingsins, í þingstörfum, þannig að ég veit ekki hvað hefur verið fjallað um hér varðandi þetta en ég heyrði aðeins að það var verið að tæpa á þessu með aldurinn. Af því að hæstv. ráðherra er staddur hér í salnum þá spyr maður sig: Hvers vegna nær ákvæðið um gjaldfrjáls námsgögn aðeins til þeirra sem eru 18 ára og yngri? Við vitum auðvitað að þetta tengist því hvenær þú telst barn samkvæmt lögum en það eru líka margir 19 ára nemendur sem eru í bekkjum með 18 ára börnum. Af því að við erum að tala um einstaklingsmiðað nám þá er fólk á misjöfnum stað og fer með misjöfnum hraða í gegnum menntakerfið okkar. Ég velti því fyrir mér þegar það eru kannski 19 ára einstaklingar í bekk með 18 ára krökkum og eru í sömu greinum og með sömu þarfir hvar jafnræðið er þar og hvernig hæstv. ráðherra sér okkur geta mætt þessum nemendum, hvort þeir þurfi hreinlega að borga sín námsgögn eða hvort þeim sé mætt með einhverjum hætti.
Einnig vekur það mína athygli að það er í rauninni ekkert verið að fjalla sérstaklega um verk- og iðnnám í framkvæmdinni. Við vitum að námsgagnakostnaðurinn þar getur verið mun hærri, töluvert hærri en í bóknámi og þarfirnar eru öðruvísi þar en í bóknámi. Það hlýtur að kalla á skýra stefnumótun og fjármögnun hvað það varðar. Hvernig ætlum við að mæta nemum sem eru í verk- og iðnnámi? Við vitum að það þarf að stækka verknámsskóla og fleira og fjölga í rauninni tækifærum þessara einstaklinga sem eru að sækja þetta nám. Það eru fleiri sem sækja um en komast að. En varðandi námsgögnin og í rauninni efniskaup og annað sem eru dýrari í þessu námi: Ætlum við að mæta þeim líka eða á þetta bara við um bækur? Talandi um skilgreininguna á hugtakinu námsgögn, hversu vítt nær það? Ég held að það sé afar mikilvægt að skilgreina þetta frekar og það mun eflaust koma fram líka í vinnu allsherjar- og menntamálanefndar, gef ég mér.
Síðan er það varðandi framkvæmdina. Hvað gerist í rauninni ef kostnaðaráætlanir standast ekki, ef sveitarfélögin, skólar, útgefendur fá ekki réttar upplýsingar? Í rauninni er þetta líka atriði sem er mikilvægt að liggi uppi á borðum áður en við samþykkjum frumvarpið.
Virðulegi forseti. Þó að frumvarpið sé mjög gott þá eru eins og þið heyrið vissir þættir sem við þurfum að skoða betur og kalla kannski á frekari rýni. Ég hef nefnt hérna aldurstakmarkið og annað sem mig langar að nefna er staða tónlistarskólanna, því að þó að þeir séu gjaldgengir til að sækja um styrki úr þróunarsjóði er ekkert í frumvarpinu sem tryggir að nemendur fái efnið gjaldfrjálst. Hvort þetta sé eitthvert ósamræmi sem þurfi að laga og mæta er kannski eitthvað sem við þurfum að fá svör við. Og varðandi einmitt framkvæmdina: Hver kaupir námsgögnin? Á ábyrgð hvers er það að panta og kaupa? Hver sér um að geyma þau? Eru það skólarnir? Og að viðhalda þeim á milli nemanda? Við vitum að það er verið að endurprenta og bæta úr en stundum skemmast námsgögn og annað. Hver ber ábyrgð á þessu öllu saman? Það gætu verið skólarnir en mikilvægt að fá það þá fram. Og ef það á að byggja á kerfi endurnýtingar, þarf þá ekki einhver sameiginleg viðmið um meðferð og ábyrgð og gæðin?
Svo er það líka fjármagnið og þótt fjármálaáætlun 2025–2029 bjóði upp á svigrúm þá vitum við að það er verið hagræða — ja, það er verið að skera niður verulega þegar kemur að menntun. Sá niðurskurður veldur mér vissum áhyggjum og ég veit að fleiri hafa miklar áhyggjur af því. Við þingmenn fengum öll tölvupóst frá Félagi framhaldsskólakennara núna í dag þar sem það lýsir yfir miklum áhyggjum af þessum fyrirhugaða niðurskurði á næstu árum. Þetta er ekki bara á næsta ári eða þar næsta ári, þetta er næstu árin. Ég veit og þekki það af samtali við fyrrverandi menntamálaráðherra að staðan er þung í rekstri framhaldsskóla og það fær mann líka til þess að hafa áhyggjur af fyrirhuguðum hagræðingartillögum sem hagræðingarhópurinn lagði til og ríkisstjórnin hefur ekki svarað til um hvort hún ætli að láta verða að veruleika eða ekki. Það er í rauninni sameining hvað varðar fjármuni og utanumhald í kringum það allt saman, fjárheimildir og annað sem framhaldsskólarnir hafa haft núna og skólameistarar. Þetta veit ég að fær alla sem vinna í menntakerfinu til að hafa verulegar áhyggjur. Við vitum að fjárheimildir fjárlaga eru ekki bundnar af lögum en ef stjórnvöld í framtíðinni setja önnur mál í forgang, hver er þá tryggingin fyrir því að námsgögnin verði áfram gjaldfrjáls? Það er eitthvað sem við þurfum raunverulega að svara ef það er verið að hagræða verulega í menntakerfinu, í kerfi sem nú þegar hefur þurft töluverða aukningu fjármuna. Ég veit að fyrrverandi barnamálaráðherra og menntamálaráðherra barðist fyrir að fá aukna fjármuni inn í kerfið og nú á að skerða þá enn frekar. Hver er tryggingin fyrir því að námsgögnin verði þá áfram gjaldfrjáls? Það þarf auðvitað að fylgja eftir því sem við ákveðum hér í þinginu, ekki bara tala um og setja í lög og svo fylgja ekki fjármunir orðunum.
Mig langaði líka aðeins að vekja athygli á mikilvægi þess að tryggja að námsgögn verði í rauninni aðgengileg öllum, ekki bara börnum. Við erum líka að horfa hérna á innflytjendur, við erum að horfa á fullorðna sem eru að sækja sér nám til starfsendurhæfingar, tungumálanám og endurmenntun. Okkur hefur verið tíðrætt um það hér í þessum þingsal hversu mikilvægt er að innflytjendur hafi tækifæri til að læra íslensku því það sé lykillinn inn í samfélagið þannig að þetta þarf allt saman að haldast í hendur; að við tryggjum það að námsmenn sem eiga annað móðurmál en íslensku geti einmitt nálgast efni við sitt hæfi á einföldu máli á fjölbreyttum miðlum og með stuðningi við íslenskunám. Það er auðvitað bara lykilatriði í því að byggja upp virkt og lýðræðislegt samfélag þar sem enginn er skilinn eftir. En það hefur borið svolítið á því og við vitum að fullorðnir einstaklingar sem flytja hingað til landsins og eru að læra íslensku eru jafnvel að fá efni sem er við hæfi barna en ekki fullorðinna af því að það skortir hreinlega námsgögn. Það hefur samt verið unnið töluvert í því að gefa út efni sem er við hæfi hvers og eins og með tilliti til aldursins sérstaklega. Ég veit líka að kennarar sem eru að vinna á símenntunarstöðum og annað, ég ræddi einmitt við einn kennara í gær, eru svolítið að þróa sig áfram og kenna út frá eigin reynslu og því sem er að gerast í samfélaginu og finna leiðir, því að kennarar gera það mjög gjarnan. Þó að þeir hafi ekki viss verkfæri þá finna þeir þau bara. En þetta er samt eitthvað sem við þurfum að skoða vel þannig að hvert námsefnið taki við af öðru og sé við hæfi á hverju námsstigi fyrir sig.
Síðan er það líka aðgengi fullorðinna námsmanna að gæðum námsgagna, hvort sem þeir eru í framhaldsfræðslu, í iðnnámi eða háskólanámi. Við verðum að átta okkur á því að nám getur, það er auðvitað misjafnt hversu mikið við menntum okkur, tekið stóran bróðurpart af ævi okkar og það er mikilvægt að kerfið styðji við þetta allt saman alla leið.
Virðulegi forseti. Frumvarpið hérna hefur marga styrkleika og það staðfestir rétt barna vissulega til að fá gjaldfrjáls námsgögn. Það eykur líka jöfnuð og getur haf bein áhrif í rauninni á námsárangur og þátttöku og eins líðan nemenda út frá fjárhagsstöðu heimilanna og þetta er stórt og mikilvægt skref. En það er líka mikilvægt þegar við erum að setja fjármuni í verkefni sem þetta að við séum svolítið gagnrýnin á okkur sjálf og við metum það hver áhrifin verða. Er einhver mælanlegur árangur í þessu? Hvernig tryggjum við að gæðaviðmiðin verði ekki bara í reglugerð heldur raungerist? Hvernig tryggjum við það að markaðurinn, útgefendur og nýsköpun fái tækifæri til að vaxa innan þessa kerfis?
Við í Framsókn höfum talað fyrir því að menntakerfið sé sveigjanlegt og það sé í rauninni miðað út frá því að nálgast einstaklingana á þeim stað sem þeir eru. Þetta frumvarp getur vissulega stuðlað að því en aðeins ef framkvæmdin nær markmiðum sínum og ef við tryggjum að öll börn, óháð aðstæðum, búsetu eða tungumáli, fái jöfn tækifæri. (Forseti hringir.)
Ég fagna þessu frumvarpi og vona að það nái fram að ganga og mun vissulega styðja við það, nema það taki miklum breytingum í nefndinni. En ég legg áherslu á þessa fyrirvara (Forseti hringir.) sem ég hef verið að fara yfir hérna í minni ræðu. Þetta er réttlætismál og núna höfum við tækifæri til þess einmitt að stíga þetta skref og fagna því (Forseti hringir.) og ég hlakka til umræðunnar í nefndinni.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)