156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[16:36]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Mig langar að koma aðeins inn í þessa góðu umræðu sem hefur staðið frá því í gærkvöldi og koma sérstaklega inn á einn þátt sem kemur fram í þessu ágæta frumvarpi. Áður en ég geri það þá vil ég bara lýsa stuðningi við þetta góða frumvarp og þakka hæstv. ráðherra, Guðmundi Inga Kristinssyni, fyrir að koma með það hér inn. Það er svo sem aðeins skylt okkur Framsóknarmönnum að vissu leyti en burt séð frá því er það nú bara mikil bót að því þegar málum sem hafa verið unnin, og það er bara eðlilegasti hlutur, er fylgt eftir og ég get ekki betur séð en að núverandi hæstv. mennta- og barnamálaráðherra sé að gera það með miklum sóma.

Eins og hv. þm. Ingibjörg Isaksen sagði hér fyrr í ræðu er þetta svokallað réttlætismál. Það á að vera réttur allra barna að geta menntað sig, haft aðgang að menntun. Þar af leiðandi er mikilvægt að námsgögnin sem til boða standa í þessu tilliti séu þeim aðgengileg og það séu þá ekki fjármunir eða félagslegar aðstæður viðkomandi einstaklinga sem þvælast þarna fyrir.

Mig langaði að fara aðeins inn á þann starfshóp sem vann að þessu máli í upphafi og tók til starfa 2024. Samtök menntafyrirtækja og Menntamálastofnun, sem er nú Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Skólameistarafélag Íslands, Kennarasambandið, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og fleiri komu að þessari vinnu og út úr þessari vinnu fékkst mikið af gögnum. Það var ákveðið málþing sem var nú að mig minnir á síðasta ári þar sem kom fram að það sem hefur hingað til staðið þessu fyrir þrifum er ákveðinn fjárskortur sem er helsta áhyggjuefnið þegar kemur að því að framleiða vandað efni. Auk þess hefur verið komið inn á það að kerfið hafi ekki verið nógu skilvirkt hvað það varðar. Það er alveg skýrt hvað það varðar frá þessum starfshóp sem skilaði af sér 2024 að það er réttur barna að geta haft aðgang að gjaldfrjálsum námsgögnum fram að 18 ára aldri. Þetta byggist á ákveðinni lagastoð frá 2007 sem snýr að ábyrgð og stuðningi ríkisins við þróun, gerð og útgáfu á námsefni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. En það kemur svo sem fram í frumvarpinu að látið hafi verið staðar numið og því hafi ekki verið farið í námsefni sem snýr að iðngreinum og líkum greinum heldur eingöngu verið fjallað um námsgögn sem snúa að bóknáminu. En ég held að framtíðarsýnin hjá stjórnvöldum í þessu samhengi sé sú að við þurfum að horfa til þess að þessi námsgögn séu til fyrir alla upp að 18 ára aldri. Sömuleiðis er það nú þannig að kennarar gera að sjálfsögðu kröfur til þess að það sé ákveðin fjölbreytni í vali á námsgögnum og fylgja verður sömuleiðis faglegum áherslum.

Við þekkjum það nú ágætlega, við sem komum utan af landi og tengjumst nú inn í skólastarfið þar með ýmsum hætti, að það hafa oft verið ákveðin vandkvæði þegar kemur að þessu, að kaupa námsgögn og annað. Og ég á ekki von á öðru en að sú ríkisstjórn sem nú er við völd geri þetta í samræmi og samstarfi við sveitarfélögin því að vissulega eru leik- og grunnskólar á forræði sveitarfélaga hvað þetta varðar. Í þessu tilviki þarf samhent átak og ég gat ekki rekið augun í það í nýútkominni fjármálaáætlun að þetta væri fjármagnað en það getur svo sem verið yfirsjón af minni hálfu. Eins og staðan er í dag þá held ég að eitt af því sem við þurfum að sjá til framtíðar með þetta mál sé að við fjármögnun þennan þátt. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það eru skiptar skoðanir á því meðal þingmanna hér og flokka hvað það varðar en sýn Framsóknarflokksins hefur verið sú að þessi námsgögn geti staðið þessum aðilum til boða og það séu bara gjaldfrjáls námsgögn fyrst og fremst sem um ræðir í þessu.

Ef ég fer nú að ljúka þessu hér, frú forseti, þá er mjög mikilvægt að lagaumhverfið um námsgögn sé þvert á skólastig og stuðli að fjölbreytni og nýsköpun í námsgagnagerð og auki framboð nýrra námsgagna og ekki síst á íslensku fyrir öll skólastig eins og hefur komið hér fram áður. Að mínu viti myndi ég segja að það sé mjög mikilvægt að hafa skýra framtíðarsýn. Mér finnst þetta vera ákveðinn grunnur að því og ég heyri ekki betur á hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórn en að það sé einhugur hvað það varðar að standa að baki þessu frumvarpi. Það kemur til með að vera eins með okkur í þingflokki Framsóknarflokksins hvað það varðar, við komum til með að styðja þetta mál enda teljum við það vera til góðs fyrir framtíð Íslands og börnin okkar sem við viljum koma til manns. Það gerum við með því að halda vel utan um þau á öllum menntastigum þangað til við hleypum þeim út í lífið og þau takast á við þau verkefni sem til er ætlast. Það er nú einu sinni þannig að ef grunnurinn að öllu því sem við leggjum upp með er góður þá kemur húsið sem við byggjum ofan á til með að standa styrkum stoðum. Hér er leiðin sem hæstv. ráðherra er að boða og lýsum við stuðningi við það góða mál.