156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[17:46]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Hér er verið að ræða afskaplega mikilvægt mál er varðar menntun íslenskra barna og þar af leiðandi alla framtíð þeirra. En þetta mál er nú rætt að mestu út frá forminu, ef svo má segja, frekar en innihaldinu. Auðvitað þarf að ræða formið líka, hvernig staðið er að útgáfu námsefnis og þær leiðir sem farnar eru til að tryggja börnum aðgang að námsefni og má segja að eitt og annað jákvætt sé að finna í þessu frumvarpi um þá viðleitni. Þetta er frumvarp, eins og svo mörg frumvörp sem við höfum rætt hér í þinginu, sem er upprunnið frá síðustu ríkisstjórn en lagt fram af þessari, svona til þess að sýna að menn séu að gera eitthvað annað en að reyna að koma í gegn stóru vandræðamálum stjórnarinnar. Jú jú, eitt og annað er jákvætt í þessu en þó teldi ég æskilegt, ég tel það raunar nauðsynlegt, að menn líti meira til innihaldsins áður en ráðist er í þessa breytingu. Það sem ég á við með því er að við þurfum að vita, nú þegar til stendur að taka upp þetta nýja fyrirkomulag og fara að prenta bækur í gríð og erg og búa til annað kennsluefni, hvers eðlis það kennsluefni á að vera. Nú fara skattgreiðendur að fjármagna þetta í enn ríkari mæli og þeir, hvort sem þeir eiga börn í skólum eða ekki en auðvitað alveg sérstaklega foreldrar, þurfa að vita hvert innihald þessa námsefnis verður.

Það er ekki að ástæðulausu að ég geri þetta að umtalsefni, frú forseti, því að á undanförnum árum hafa ítrekað komið upp dæmi um að verið sé að kenna börnum í íslenskum skólum efni sem orkar á einn eða annan hátt mjög verulega tvímælis. Ég hef rætt hér klámkennsluna svokölluðu, sem rekin hefur verið með miklu offorsi í sumum skólum og meira að segja náð inn á áróðursplaköt sem hengd eru upp á veggi skólanna með orðbragði sem ég tel ekki við hæfi að rekja hér í ræðustól Alþingis. Auk þess hefur að því er virðist kennslan í mjög auknum mæli orðið pólitísk en afraksturinn blasir við. Námsárangur íslenskra barna er ekki sem vera skyldi og við verðum bara að segja þetta hreint út, frú forseti, því það er þingsins, og annarra auðvitað líka en ekki hvað síst þingsins, að taka á þessu.

Sú leið sem hefur verið farin hefur ekki skilað árangri, valdið afturför og Ísland er nú eins og þekkt er að mælast einna lægst í Evrópu í PISA-könnunum. Þá hljóta menn að vilja staldra við og spyrja sig: Þurfum við ekki að gera þetta einhvern veginn öðruvísi? Þurfum við ekki nú, þegar verið er að leggja fram frumvarp til laga um námsgögn, að huga að innihaldi þeirra námsgagna og hvernig það verði best til þess fallið að rétta kúrsinn, bæta námsárangur íslenskra barna og þar með framtíð þeirra? Það er að vísu getið um það í frumvarpinu að námsgögnin taki mið af stefnu stjórnvalda hverju sinni en hún virðist vera nokkuð óljós hjá þessari ríkisstjórn og síðustu ríkisstjórnum og ekki að sjá að það sé beinlínis hægt að styðjast við þær almennu yfirlýsingar sem við höfum heyrt frá ráðherrum um mikilvægi menntunar í útgáfu námsefnisins. Það þarf eitthvað skýrara og afmarkaðra og í því samhengi er jú vísað til aðalnámskrár grunnskólanna. Ég fór að rifja upp aðalnámskrá grunnskólanna af þessu tilefni. Það er sláandi plagg, frú forseti, þetta rifjaðist upp fyrir mér, plagg sem hefur verið í gildi að mestu óbreytt frá 2011, sett í tíð hreinu vinstri stjórnarinnar, af þáverandi menntamálaráðherra, og er uppfullt af leiðsögn um það með hvaða hætti íslenskir grunnskólar eigi að kenna börnum það sem er varla hægt að kalla annað en vinstri græn fræði. Það hefur ekki verið brugðist við þessu þrátt fyrir að árangurinn sé að koma betur og betur í ljós hvað varðar getu og námsfærni íslenskra barna.

Í aðalnámskrá eru skilgreindir grunnþættir menntunar, sex atriði. Fyrsta atriðið, fyrsti grunnþátturinn, er læsi. Já, jú, þetta byrjar ágætlega þótt árangurinn í læsi hafi kannski ekki alveg verið sem skyldi eins og við þekkjum, en ég þarf reyndar að koma betur að því á eftir hvað átt er við með orðinu læsi því að hvað telja menn að komi næst; stærðfræði, mannkynssaga, málfræði? Hvað gætu menn ímyndað sér að kæmi næst, væri næsti grunnþáttur menntunar á eftir læsi? Það er sjálfbærni eins og hún var á þessum tíma skilgreind af Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Næst koma heilbrigði og velferð, svo lýðræði og mannréttindi, aftur samkvæmt þeirri vinstri grænu skilgreiningu, svo jafnrétti, enn og aftur sama skilgreining, og loks sköpun. Þegar farið er að skoða hvað liggi þarna að baki þá kemur eitt og annað áhugavert í ljós, t.d. varðandi fyrsta liðinn, læsi. Ég vitna hér beint í aðalnámskrá, með leyfi forseta, um læsi segir:

„Læsi hefur löngum verið tengt við þá kunnáttu og færni sem fólk þarfnast til þess að geta fært hugsun sína í letur (ritað) og skilið prentaðan texta (lesið). Það hefur snúist um eitt kerfi tákna, prentmálið, og þá menningu og þau tjáningarform sem tengdust því. Í skólum hafa menn litið svo á að færni á þessu sviði væri fyrst og fremst bundin við einstaklinga og hægt væri að mæla hana, sumir væru fluglæsir en aðrir treglæsir eða jafnvel ólæsir.“

En svo er útskýrt að þetta sé mjög gamaldags viðhorf til læsis, það að menn ímyndi sér að það sé hægt að mæla færni á þessu sviði, en þar segir:

„Með tímanum hafa hugmyndir manna um læsi breyst enda hefur fræðafólk í ýmsum greinum varpað á það ljósi með rannsóknum sínum. Þótt kunnáttumenn séu ekki sammála um allt sem lýtur að læsi má nefna nokkur mikilvæg atriði sem þeir hafa bent á: Læsi snýst um samkomulag manna um málnotkun og merkingu orða í málsamfélagi og er því félagslegt í eðli sínu. Það er háð hefð og er því ekki færni sem einstaklingar geta öðlast og beitt óháð stað og stund, menningu og gildum.“

Hér er textinn kominn svolítið út í mýri og búið að flækja það mjög hvað læsi sé og hvert markmiðið sé með því að leggja áherslu á læsi. En svo er reynt í lokin á þessari málsgrein að útskýra það, ná aðeins jarðtengingu aftur með því að útskýra eftirfarandi:

„Læsi krefst skriffæra, efnis til að skrifa á og miðils, t.d. bókar, til að koma ritsmíðinni á framfæri og snýst því að hluta til um tæknimiðla og verkkunnáttu.“

Svo heldur þetta áfram svona, frú forseti, kaflinn um læsið.

Næst kemur kaflinn um sjálfbærnina, grunnþátt númer tvö. Þar er nú bara farið yfir einhverja grænfriðungafræði sem virðist samkvæmt þessu hafa verið kennd íslenskum börnum frá 2011, eða eftir að skólarnir fóru að tileinka sér þetta.

Næst er það lýðræði og mannréttindi. Þar virðast höfundar aðalnámskrár vera að lýsa því sem áður var kallað kristinfræði en þó án kristni, lýsa því hvaða gildismat nemendur eigi að hafa en einnig að það sé mikilvægt að þau tileinki sér lýðræði. Það er útskýrt með eftirfarandi setningu:

„Gert er ráð fyrir því að börn og ungmenni læri til lýðræðis með því að læra um lýðræði í lýðræði.“

Þá vitum við það.

Næsti kafli er jafnrétti. Þar er þetta sama sagan, að mestu bara stefnan eins og við þekkjum hana úr stefnuskrá VG og kannski einhverra fleiri vinstri flokka en þar birtast líka mjög varasamir hlutir, innflutt dellufræði, held ég að megi alveg kalla það, stundum kölluð fórnarlambafræði, sem ganga út á það að kenna börnum, og fullorðnum eftir atvikum, að fólk njóti mismunandi forréttinda eftir líkamlegum einkennum, t.d. húðlit eða kyni og það sé ekkert við þessu að gera, þetta sé bara innbyggt. Það er sem sagt verið að kenna börnum, sumum þeirra, að þau verði eilífðarfórnarlömb og njóti aldrei sannmælis á meðan öðrum börnum er kennt að þau verði eilífðargerendur. Þetta er ekki góð uppeldisleið og í raun bara skaðleg fyrir báða hópana. Það má einfaldlega, eins og gert hefur verið hér í gegnum tíðina, leggja áherslu á að allir einstaklingar séu jafn réttháir og að við eigum að vera samfélag sem veitir öllum tækifæri.

Áður var nefnilega áhersla í íslenskri menningu, og námi fyrir vikið, á það sem sameinar okkur, hvort sem það var tungumálið, sameiginleg saga og það að hafa tekist á við hana sem þjóð. Nú er í auknum mæli verið að leggja áherslu á að draga fram það sem gæti hugsanlega sundrað og búið að setja það inn í aðalnámskrá grunnskólanna að kenna ákveðin vúdúfræði á því sviði. En allir þessir þættir, ef maður skoðar nánar hvað í þeim felist, grunnþættir menntunar eins og þeir eru skilgreindir, eru það sem í daglegu tali er kallað „woke“. Það er búið að innleiða í aðalnámskrá leiðbeiningar um að það eigi að kenna börnum vókisma. Það er bara ekki gott og við sjáum árangurinn. Við sjáum árangurinn birtast í námsárangri eða skorti á honum hjá íslenskum börnum samanborið við annars staðar. Svo er útskýrt hérna að þessir sex grunnþættir eigi að ráða í raun öllu hinu og eigi að fara inn í alla menntun. Kynjafræðin kemur hér við sögu eins og menn geta rétt ímyndað sér, kynjafræðin sem hefur verið til umræðu að undanförnu en allt meira og minna pólitísk leiðarljós.

Ég tel, frú forseti, og helst ættu menn auðvitað að hafa klárað það fyrir, að samhliða umræðunni um útgáfu námsgagna þurfi að ræða það hvað eigi að vera í þeim námsgögnum. Það þarf greinilega að gera miklar úrbætur þar á eins og árangursleysið sýnir. Ég tel líka að foreldrar eigi að hafa skýlausan rétt á aðgangi að námsefni barna sinna. Það hefur komið fyrir að foreldrar einfaldlega fái ekki að sjá hvað verið er að kenna börnunum í ákveðnum skólum. Það hlýtur að vera réttur foreldranna að fylgjast með námsframvindu barna sinna.

Ég tek einnig undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa nefnt að huga þurfi í auknum mæli að verknáminu í þessari vinnu og vonandi mun nefndin gera það í sínum störfum í framhaldinu og eins með aldursviðmiðið og hvort það geti skekkt stöðu nemenda eftir því hvenær þeir eru fæddir á árinu.

Að lokum, frú forseti, eins og ég nefndi hérna í upphafi, þetta er gríðarlega mikilvægt mál sem við getum ekki leyft okkur að tala um bara út frá umbúðunum. Í þessu eins og öðru þurfum við að ræða innihaldið og innihaldið er ekki í lagi þótt auknir peningar verði settir í námsgagnaútgáfu og prentað meira. Ef innihaldið er ekki í lagi þá er lítið gagn í því.