156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[18:01]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir góðan pistil um námsgögn og því sem námsgögn tengjast. Ég hjó sérstaklega eftir því að hann talar hér um þann leiðarvísi sem allir kennarar eiga að fara eftir og kenna íslenskum börnum eftir þessum leiðarvísi, sem er aðalnámskrá grunnskóla. Með leyfi forseta ætla ég aðeins að vitna hér í skýrslu sem kom út 2020 frá menntamálaráðuneytinu um áðurnefnda aðalnámskrá:

„[Skólastjórnendum, foreldrum, nemendum og kennurum] þykja helstu þættir aðalnámskrár illskiljanlegir, of háfleygir og of undirorpnir túlkun hvers og eins. […] Einnig þótti skólastjórnendum og kennurum aðalnámskráin hafa verið of stór biti í einu og að skipta hefði þurft innleiðingunni í marga áfanga […]. Sömuleiðis þurfi að einfalda hæfni- og matsviðmið til muna og fækka þeim. Mikið ósamræmi er í því hvernig aðalatriðið námskrárinnar, til að mynda hæfniviðmið, matsviðmið og námsmatskerfi, eru notuð í grunnskólum landsins og ljóst að helstu markmið aðalnámskrár grunnskóla frá 2011 og 2013 hafa ekki náðst.“

Ofan á þetta bætast síðan grunnþættir menntunar sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson minntist á hér áðan. Ég er hér búinn að tala um hæfniviðmið og matsviðmið, grunnþætti menntunar. Svo eru komin námsmarkmið að ógleymdri lykilhæfni. Allt þetta er að finna í námskrá sem ekki hefur verið innleidd og skólar geta varla unnið eftir.