námsgögn.
Frú forseti. Ég get ekki annað en tekið undir þar sem hv. þingmaður vitnaði í varðandi hversu illskiljanlegt og háfleygt og þar af leiðandi gagnslítið þetta er. Þegar ég fór að kynna mér aftur aðalnámskrána til að undirbúa þessa umræðu þá brá mér í rauninni í brún annars vegar vegna þessa — ég nefndi örfá dæmi um sérkennilegan texta hérna áðan en það mætti halda margar ræður upp úr þessu mikla riti, þetta er nú nánast hálf símaskrá að þykkt, svona markleysa sem þar birtist. En svo er það hitt sem veldur mér ekki síður áhyggjum og ég gerði að umtalsefni hér þar sem mér virðast vera tilburðir þeirra sem réðu á þessum tíma til að innleiða sína pólitísku hugmyndafræði, misviturlega, inn í nám barna. Og þótt það sé ekki til siðs að spyrja þann sem veitir manni andsvar spurninga og engin skylda að sjálfsögðu fyrir hv. þingmann til að svara þá langar mig samt að nota tækifærið vegna hinnar miklu þekkingar hv. þingmanns á þessu sviði til að spyrja hvort ekki sé hægt að hreinlega skrifa nýja aðalnámskrá, miklu styttri, skýrari og með skýrri markmiðslýsingu á því hvernig eigi að kenna og hvað skuli kenna, t.d. aukaáherslu á stærðfræði og þau svið þar sem íslenskir nemendur hafa átt í miklum erfiðleikum.