námsgögn.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni aftur fyrir gott svar. Hann spyr hvort það þyrfti að skrifa nýja námskrá. Hér erum við að byggja námsgögn á námskrá sem er, eins og ég las áðan upp úr skýrslu, ónýt. Hún virkar ekki og hefur ekki virkað. Það er partur af því að Ísland er á þeim stað í menntamálum sem það er núna.
Ég vil þá spyrja til baka, áður en ég svara mögulegri spurningu hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, hvort hann telji það vera viskulegt að eyða 300–400 milljónum á ári í námsgögn sem byggja á ónýtu plaggi. Ég skal svara spurningu hans um námskrá. Auðvitað þarf að skrifa nýja námskrá. Það liggur í augum uppi og hefur verið vitað í mörg ár í grunnskólunum að það þarf nýjanámskrá, sem er þá leiðarvísir kennaranna en ekki ráðgáta eins og námskráin í dag. Menn opna námskrána og líður bara í raun illa að átta sig ekki á hvers er ætlast til af kennurum og hvað þá nemendum. Matskerfið í henni er það flókið að varla nokkur maður skilur það frekar en Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. [Hlátur í þingsal.] Þetta er komið á það stig. Þetta er bara satt þótt menn hlæi hér í salnum. Það eru bara örfáir sem skilja þetta matskerfi. Þetta er samt leiðarvísir kennaranna og þetta er plaggið sem við erum að fara að byggja námsgögnin á, fleiri hundruð milljónir á hverju einasta ári.
Er ekki byrjað á öfugum enda? spyr ég hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson.