156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[18:08]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að hv. þm. Jón Pétur Zimsen hafi þarna náð að kjarna nú í lok þessarar umræðu fáránleika þess að hér sé verið að ræða það að setja mörg hundruð milljónir á ári í að búa til gögn sem byggð verða á ónýtum grunni, eins og bara að byggja skólabyggingu án þess að huga að grunninum, byggja bara úti í mýri. Þetta er áhyggjuefni, frú forseti, og því miður of lýsandi fyrir hvernig þingið hefur oft og tíðum nálgast stór úrlausnarefni. Það er skipt um umbúðir en ekki hugað að innihaldinu. Ég tel þess vegna að það sé ekki bara vel þess virði heldur í rauninni nauðsynlegt, eins og ég kom aðeins inn á í upphafi ræðu minnar, að byrja á því, það verður að vinna það samhliða en eðlilegast hefði verið að byrja á því, að gera og gefa út nýja aðalnámskrá, skýra, miklu styttri en þessa, skiljanlegri og fyrst og fremst með áherslu á nám þar sem börnin þurfa að læra og aðferðirnar til að þau geti lært það frekar en með einhverjum svona yfirdrifnum texta hugmyndafræðinga af vinstri kantinum. Ef við ætlum að ná árangri í íslenska skólakerfinu, eins og við þurfum að gera, við þurfum að ná miklu meiri árangri heldur en raun ber vitni, þá þarf að huga að innihaldinu.