námsgögn.
Virðulegur forseti. Ég get tekið undir margt sem kom fram í skemmtilegri ræðu hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þar sem rætt er um innihaldið og hvert við eigum að stefna í þeim efnum. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með þessari umræðu um námsgögn, sérstaklega þeirri í gærkvöldi sem við tókum þátt í mörg hver í góðan tíma. Það var mjög málefnaleg og góð umræða. Við erum að tala um námsgögn og breytingar á kerfi sem hefur verið við lýði í útgáfu námsgagna í 90 ár hér á landi. Það ríkti áður frelsi í útgáfu námsgagna eins og kom fram í gær. Við höfum verið eina landið í Evrópu sem hefur þennan háttinn á. Eina landið í Evrópu sem hefur haft ríkiseinokun á útgáfu námsefnis.
Það er verið að stíga ákveðin skref og þetta er úr frumvarpi sem er búið að vera að vinna að, eins og hér hefur komið fram, um lengri tíma. Í því er m.a. fjallað um þróunarsjóð námsgagna. Það kom fram í umræðunni í gær að það væri verið að stíga svo sannarlega skref í átt að því að aflétta þessari ríkiseinokun en t.d. í þróunarsjóði námsgagna, sem tekur umsagnir til meðferðar og gerir tillögur til ráðherra um styrkveitingar úr sjóðnum, þá á sérstök stjórn, sérfræðisjóðstjórn að ákveða þar um hverjir fá að gefa út efnið.
Mig langar til að spyrja hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson að því hvort honum finnist nógu stór skref stigin í átt að því að aflétta miðstýringu í námsgagnagerð hér á landi. Þar kemur náttúrlega það sem þingmaðurinn kom inn á mjög mikið, (Forseti hringir.) þetta um innihaldið sem mun skipta sköpum í því. En er verið að aflétta (Forseti hringir.) nóg að hans mati ríkiseinokun í þessum efnum?