námsgögn.
Frú forseti. Ríkiseinokuninni hefur ekki verið aflétt eða verður ekki aflétt með þessu frumvarpi eins mikið og ég gerði ráð fyrir, ekki eins mikið og talað var um þegar lagt var af stað með þessa vinnu. Það kann að vera að nefndin geti hugað eitthvað að því núna í vinnu sinni næstu vikurnar en ég náttúrlega hef fyrst og fremst áhuga á því að það efni sem börnin fá til að læra af sé gott efni, innihaldsríkt með góðu innihaldi. Ég myndi halda að einkaaðilar gætu ekkert síður en ríkið búið til slíkt efni en þá kemur náttúrlega að því að velja og það má velta fyrir sér hvort opinber stofnun eða opinber nefnd hallist frekar að því velja ríkisnámsefnið. Það er ekkert gefið að svo verði en það hefur oft verið þannig að innan kerfisins er meiri samúð með því sem kemur frá kerfinu heldur en því sem er utanaðkomandi. En til að gera langa sögu stutta þá tel ég bara mjög æskilegt að sem flestir hafi möguleika á því að búa til og kynna námsefni, því fjölbreytilegra sem það er og þeim mun fleiri sem koma með hugmyndir og semja efni, þeim mun meiri eru líkurnar á að við fáum gott efni.