námsgögn.
Frú forseti. Í háskólanámi er algengt að kennararnir ekki aðeins velji námsefni heldur jafnvel skrifi námsefnið sjálfir og gefi út í bókum eða heftum eða með öðrum hætti, en ég myndu nú ekki ganga svo langt að segja að hver og einn kennari í grunnskóla í skyldunámi ætti að hafa sjálfdæmi um hvað kennt er. Það gæti haft ýmsa erfiðleika í för með sér. Í fyrsta lagi auðvitað óvissu um hvað barnið fær í hverjum skóla fyrir sig eða jafnvel í hverjum bekk fyrir sig, ósamræmi í því sem börnin hafa síðan lært þegar þau útskrifast úr skólunum og þannig mætti lengi telja. Það sem veldur mér mestum áhyggjum hvað þetta varðar og eins þá þætti sem hv. þingmaður nefndi áðan um valið, miðstýrða valið á því hvað ætti að nota og hvað ekki, er þetta með hugmyndafræðivæðingu náms. Ekki hvað síst á grunnskólastigi, eins og birtist svo glögglega í þessari aðalnámskrá sem ég vitnaði nokkrum sinnum í hérna í ræðu minni áðan. Ef þetta væri bara spurning um að finna einhverja bók sem kennir t.d. stærðfræði á snjallan og árangursríkan hátt, bók sem hefur reynst vel, jafnvel einhvers staðar annars staðar eða bók um mannkynssögu þar sem leitast væri við að lýsa sögunni eins og hún var í stað þess að innræta einhverjar hugmyndir um endurskilgreiningu mannkynssögunnar, þá væri þetta ekki svo flókið. Þá gætu menn einfaldlega metið hvað svona virðist vænlegast og nýtt sér það efni. En þess heldur þurfum við að losna við pólitíkina úr námsefninu, frú forseti.