156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

framhaldsskólar.

282. mál
[18:18]
Horfa

(Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á núgildandi lögum um framhaldsskóla í nokkrum liðum. Lög um framhaldsskóla öðluðust gildi þann 1. ágúst 2008 og fólu í sér veigamiklar breytingar á skipulagi náms á framhaldsskólastigi. Frá gildistöku laganna hefur þróun átt sér stað á umhverfi framhaldsskóla sem gefur tilefni til tiltekinna breytinga. Með frumvarpinu er ekki ætlunin að gera róttækar breytingar á löggjöf framhaldsskólastigsins. Markmið frumvarpsins er að aðlaga ákvæði laga um framhaldsskóla að breytingum sem hafa orðið á umhverfi framhaldsskóla og skýra álitaefni sem hafa komið upp í framkvæmd. Þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpi þessu fela jafnframt í sér skýrari og fyrirsjáanlegri reglur.

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp felur í sér breytingu á lögum um framhaldsskóla í nokkrum liðum. Meginefni frumvarpsins má skipta í eftirfarandi þætti:

Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar sem eiga að skerpa á lagaumhverfi um framhaldsskóla eftir því hver rekstraraðilinn er en ekki gilda sömu reglur um opinbera framhaldsskóla og aðra skóla á framhaldsskólastigi sem eru reknir af einkaaðilum sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra. Um er að ræða ákvæði um skólaráð, samstarf framhaldsskóla um rekstur og ákvæði um námsorlof. Þá er lögð til breyting sem lýtur að viðurkenningu framhaldsskólanna til kennslu á framhaldsskólastigi þar sem lögð er áhersla á að skýra heimild ráðherra til að veita bráðabirgðaviðurkenningu til kennslu á meðan umsókn er til meðferðar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Í öðru lagi felur frumvarpið í sér nýmæli um heimild framhaldsskóla til að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans. Þótt framhaldsskólar hafi ýmsar heimildir til samstarfs í gildandi lögum er lagt til að lögfesta skýrari umgjörð um samstarf. Þar er litið til þess að framhaldsskólar gera sérstaka samninga um samstarf. Þá er lagt til að samningar sem hafa veruleg áhrif á rekstur skóla skuli staðfestir af ráðherra að fenginni umsögn skólanefndar viðkomandi skóla.

Í þriðja lagi felur frumvarpið í sér ákveðnar breytingar á fyrirkomulagi þess ferlis þegar framhaldsskólar setja sér námsbrautarlýsingar. Ekki verða breytingar á því meginfyrirkomulagi að framhaldsskólar vinna námsbrautarlýsingar en ráðuneytið rýnir námsbrautarlýsingar með tilliti til gæða og viðurkennir þær. Breytingarnar lúta að ýmsum formþáttum í viðurkenningarferli námsbrautarlýsinga þar sem horfið verður frá því að ráðherra birti allar námsbrautarlýsingar í Stjórnartíðindum og þær verða hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla. Verði frumvarpið að lögum munu námsbrautarlýsingar vera viðurkenndar með opinberri birtingu, t.d. á sérstöku vefsvæði ráðuneytisins. Áfram er gert ráð fyrir því að ráðherra geti sett viðmiðunarnámsbrautir sem framhaldsskólar geta notað og slíkar brautir verði hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla. Eins og áður segir felst í þessu breytt verklag en ekki verður dregið úr kröfum til framhaldsskóla um gæði náms og námsbrautarlýsinga. Aðkoma ráðuneytisins að námsbrautarlýsingum verður áfram tryggð en breytingin er liður í því að auka skilvirkni í framkvæmd.

Í fjórða lagi er í frumvarpinu fjallað um breytingar á ákvæðum laga um vinnustaðanám. Árið 2021 var sett ný reglugerð um vinnustaðanám sem markaði töluverðar breytingar á umgjörð vinnustaðanáms þar sem aukin áhersla á var t.d. lögð á réttindi nemenda í vinnustaðanámi. Við framkvæmd þessarar reglugerðar hafa komið í ljós ýmis atriði sem rétt er að tekið sé á í löggjöf. Í frumvarpinu er t.d. skýrð ábyrgð framhaldsskóla á gerð vinnustaðasamninga. Breytingin er í samræmi við áherslur reglugerðar um vinnustaðanám, nr. 180/2021, og er m.a. til þess fallin að auka rétt og öryggi nemenda um eðlilega námsframvindu. Í frumvarpinu eru einnig lagðar til ákveðnar breytingar á skipulagsskrám yfir iðnmeistara, fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms en samkvæmt frumvarpinu verður það verkefni ráðuneytisins að hafa yfirsýn yfir fyrirtæki og vinnustaði sem uppfylla skilyrði til að taka nema í vinnustaðanám. Í frumvarpinu er einnig fjallað um námsmat í vinnustaðanámi þar sem lagt er til að mat á hæfni nemenda í vinnustaðanámi sé í höndum iðnmeistara, fyrirtækja eða stofnana undir umsjón skólameistara. Sú áhersla er til þess fallin að samræma reglur sem gilda um námsmat í framhaldsskólum og styrkja rétt nemenda til skýringa og úrlausnar ágreinings vegna mats á hæfni í vinnustaðanámi.

Í fimmta lagi eru lagðar til breytingar á reglum um innritun í framhaldsskóla. Í ljósi aukinnar umræðu um inngildingu í skólastarfi ásamt öðru er lagt til að ákvæði laganna um innritun í skóla verði endurskoðað þar sem sjónarmiðum sem heimilt er að líta til við innritun nemenda í framhaldsskóla verður fjölgað. Lagt er til að heimilt verði að byggja á fleiri stoðum sem tengjast nemanda en námsárangri hans. Hér er t.d. átt við upplýsingar um þátttöku og árangur í óformlegu námi, félagsstarfi og íþróttum og upplýsingar sem varpa ljósi á áhuga nemanda, t.d. hvort viðkomandi skóli sé fyrsta eða annað val hans. Þá er lagt til að heimilt verði að líta til sjónarmiða sem tengjast skólasamfélaginu, þar með talið að vinna gegn einsleitni í nemendahópum. Hér er t.d. átt við að við innritun sé heimilt að líta til kyns eða að aðrar reglur gildi um námsárangur þeirra sem ekki hafa íslensku að móðurmáli og taka tillit til fjölda nemenda með langvarandi stuðningsþarfir innan skóla. Áfram er gert ráð fyrir að ráðherra setji reglugerð um innritun í framhaldsskóla þar sem þessi sjónarmið eru útfærð.

Í sjötta lagi eru í frumvarpinu lagðar til ákveðnar breytingar á ábyrgð og skyldum nemenda í framhaldsskóla. Orðalag gildandi ákvæðis hefur reynst erfitt í framkvæmd. Þá hefur nýlegt mál vegna alvarlegra brota nemanda gagnvart öðrum nemendum varpað ljósi á mikilvægi þess að ákvæðið sé endurskoðað frá grunni. Í frumvarpinu er einnig fjallað um breytingar sem miða að því að skýra úrræði og málsmeðferð skóla vegna brota nemenda á skyldum sínum. Áhersla verður lögð á lausnamiðaða nálgun út frá stuðningsþörfum nemanda ef hegðun, skólasókn eða námsárangur er ófullnægjandi áður en gripið er til meira íþyngjandi viðbragða gagnvart nemandanum ef unnt er. Þá er í frumvarpinu lagt til að skilgreint verði nánar hvaða viðbragða eða viðurlaga skóli getur gripið til gagnvart nemanda.

Í sjöunda og síðasta lagi er í frumvarpinu fjallað um breytingar sem miða m.a. að því að skýra stöðu samninga ríkisins við aðra skóla á framhaldsskólastigi sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra. Þá er í frumvarpinu lagt til það nýmæli að ráðherra verði heimilt að framlengja samninga við aðra skóla en opinbera framhaldsskóla að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Virðulegur forseti. Ég hef farið yfir meginatriði frumvarpsins en vísa að öðru leyti til greinargerðar þeirrar sem fylgir frumvarpinu. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til allsherjar- og menntamálanefndar til frekari umfjöllunar.