framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir sína framsögu á þessu máli. Það eru svona nokkur atriði sem fá mann kannski til að hugsa þegar maður rennir yfir þetta mál, af því að nú erum við að tala um mikilvægi samræmis á milli fjármögnunar og þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin ætlar að ráðast í og þeirra mála sem hér koma fram. Við sjáum að framhaldsskólastigið fær samkvæmt fjármálaáætlun 2026–2030 ekki aukin fjárframlög, sem er mikið áhyggjuefni. Við vitum af því að það var ætlunin að stækka fjóra verknámsskóla á landinu sem kostar fjármuni og eins er verið að leggja til kostnaðarsamar aðgerðir. Ég velti því fyrir mér í þessu ljósi að við sjáum að það eru ekki sett fram ný fjárhagsleg markmið. Það eru engir mælikvarðar og það er ekkert umfang fjárfestinga til að styðja við þau markmið sem lögð eru fram í frumvarpinu.
Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í þetta samræmi við fjármálaáætlun: Hvernig á að innleiða allar þessar breytingar, sérstaklega um aukið eftirlit og ábyrgð skóla á vinnustaðanámi, án þess að sjá aukningu í fjárframlögum til málaflokksins. Eru þarna fjárframlög sem við sjáum ekki og er ekki getið um eða á að hagræða með einhverjum hætti eða færa til fjármuni? Hvernig á að finna fjármuni í þetta?