framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar andsvar. Ég get alveg fullyrt það að það hefur komið mjög skýrt fram, sérstaklega hjá hæstv. forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur, í umræðu um fjármálaáætlunina, að það stendur ekki til að skera niður í framhaldssnámiheldur stendur til hagræðing. Það kom líka skýrt fram að það stæði aldrei til að skera niður á framhaldsskólastiginu heldur eingöngu að horfa til þess hvernig við getum nýtt betur skattfé. Sem sagt, okkur ber skylda til þess að nýta skattfé eins vel og við getum og við erum einmitt að skoða þar ákveðna hagræðingu innan kerfisins. En við erum ekki að skera niður. Það er alveg á hreinu. Við erum að reyna að breyta kerfinu þannig að við nýtum betur það fé sem við erum með í skólakerfinu og ég trúi því að við getum það og eigum að gera það. Okkur ber skylda til þess. Það er einmitt það sem við erum að fara hérna í gegnum, að breyta kerfinu til hins betra og líka á sama tíma að sjá til þess að við séum að nýta allt það fé sem fer í skólanámið á þann besta hátt sem hægt er. Og það er alveg búið að koma því á hreint að það er alls ekki verið að skera niður í framhaldsskólakerfinu.