framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Þetta er svolítið líka bara orðaleikur. Ég veit að stjórnvöld tala um hagræðingu því að það hljómar betur heldur en niðurskurður. Hins vegar er það þannig að það er mjög mikilvægt að við skoðum hvernig fjármunum skattborgara okkar er í rauninni ráðstafað og það er alltaf hægt að velta við steinum og skoða hvort við getum gert það með betri hætti. En hins vegar er það þannig að Félag framhaldsskólakennara sá ástæðu til þess að senda ályktun til allra þingmanna þingsins hér í dag vegna áhyggna sinna af niðurskurði.
Hæstv. ráðherra svaraði í rauninni ekki minni spurningu þegar ég spurði: Hvernig á að innleiða allar þessar breytingar, sérstaklega um aukið eftirlit og ábyrgð skóla á vinnustaðanámi sem verið er að setja í rauninni íþyngjandi reglur um? Hvernig eigum við að geta þetta án þess að fá meiri fjármuni? Ég veit að rekstrarumhverfi framhaldsskóla er þungt í dag og ég hef áhyggjur af því hversu létt hæstv. ráðherra tekur á þessu. En hvernig á að innleiða þessar breytingar ef það eiga ekki að koma meiri fjármunir inn? (Forseti hringir.) Og annað: Hvernig er ætlunin að meta veruleg áhrif á rekstur í samstarfssamningum milli skóla? Hvaða mælikvarðar gilda þar?