156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

framhaldsskólar.

282. mál
[18:32]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vil ítreka að það kom skýrt fram og hefði komið enn betur fram í umræðunni um fjármálaáætlun ef þingmenn hefðu ekki yfirgefið hér salinn áður en ég fór að ræða fjármálaáætlun. Þeir hefðu getað komið í andsvör og spurt mig en einhverra hluta vegna tóku stjórnarandstöðuþingmenn þá ákvörðun að labba á dyr. Það kom líka fram í þessari umræðu hjá hæstv. forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur þegar verið var að spyrja hana um nákvæmlega sama efnið að þá sagði hún að það yrði ekki skorið niður og ef það kæmi upp sú staða að það þyrfti að bæta fjármunum inn í þetta þá væri einhver neyðaráætlun þar í gangi til að koma þessum málum í framkvæmd og þá yrði farið í varasjóð. Það er bara það sem er stefnt að. (Gripið fram í.) Já, það er það sem er verið að stefna að. Ef á þarf að halda þá fáum við fjármuni til að klára það sem við erum að fara að gera.