framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég ætla að halda áfram frá því sem frá var horfið hér varðandi vinnustaðanámssamningana. Í fyrsta lagi þá lítur þetta þannig út að það sé verið að hleypa lagastoð undir reglugerð sem gerð hefur verið um vinnustaðanámið og fyrir mig sem þekki ekki til hlítar hvernig þetta er framkvæmt í dag þá er ég ekki alveg að átta mig á því hver breytingin er frá því sem er bara í dag. Er þetta fyrst og fremst um að setja lagastoð undir þetta eða, eins og hv. þm. Ingibjörg Isaksen kom inn á, er ekki verið að krefjast meira af skólunum varðandi eftirlit með þessum samningum? Þá sé ég hér í greinargerðinni um 11. gr., að þar segir:
„Í 4. málsl. er mælt fyrir um heimild ráðherra til að fela öðrum skóla en þeim sem nemandi stundar nám við, eða öðrum aðila, að sjá um gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamninga og hafa eftirlit með þeim. Með öðrum aðila er einkum átt við aðila sem ráðherra hefur falið umsýslu með vinnustaðanámssamningum.“
Ég bara velti fyrir mér: Er verið að hugsa um að fela einhverjum einum tilteknum skóla það hlutverk, ég nefnir hérna bara Tækniskólann? Myndi Tækniskólinn sjáum alla vinnustaðanámssamninga fyrir allt iðnnám? Er það einhver slík pæling sem er í gangi varðandi þennan lið og er eitthvert kostnaðarmat á þessari breytingu per se, þ.e. ef auka á eftirlit og ábyrgð skólanna með vinnustaðanámssamningnum, hver er áætlaður kostnaður við það? Fyrirgefðu ef það stendur hér í greinargerðinni en þá fór það alla vega fram hjá mér.