156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

framhaldsskólar.

282. mál
[18:36]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar andsvar. Ég verð bara að segja alveg eins og er að það er ekki reiknað með neinum kostnaði vegna þessa frumvarps. Það kemur alveg skýrt fram. Það er bara verið að styrkja stoðir undir þeim hlutum sem eru komnir, eins og í sambandi við vinnustaðasamninga og annað, það er bara verið að styrkja stoðir undir því sem er í gangi. Það er verið að gera þar breytingar þannig að í sjálfu sér erum við bara að einfalda hlutina. Það er verið að ganga þannig frá að það sé komið inn í lögin að hlutirnir geti gengið upp eins og þeir eiga að gera í sjálfu sér. Það er alveg skýrt í þessu, eins og kemur vel fram í frumvarpinu, að það er ekki reiknað með kostnaði vegna þessa frumvarps. Þar af leiðandi erum við bara að skerpa á ýmsum hlutum til að koma því inn í lögin þannig að það sé alveg á hreinu að það sé lagastoð fyrir því sem við erum að gera. Það er einfalda svarið.