156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

framhaldsskólar.

282. mál
[18:37]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og ítreka spurninguna varðandi það að geta falið öðrum skóla að halda utan um þetta, ef ráðherra gæti komið inn á það.

Ég hef bara eina mínútu og það er margt sem mig langar að spyrja um. En ég ætla þá kannski að nýta þetta andsvar í að spyrja um innritun nemenda í framhaldsskóla og að styrkja þá lagastoð. Ég er aðeins að velta því fyrir mér hvort þessar breytingar muni bæta ástandið og möguleika okkar sérstaklega varðandi fatlaða nemendur og börn með sérþarfir, sem við höfum oft fengið fréttir af í aðdraganda skólaslita hjá grunnskólum og upphafs framhaldsskóla. Það hefur verið mjög vandkvæðum bundið að tryggja þessum börnum skólavist og nám við hæfi. Er þeirri aðferðafræði hér sem verið er að tala fyrir að einhverju leyti beint að því verkefni?