156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

framhaldsskólar.

282. mál
[18:38]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Jú, það kemur einmitt líka skýrt fram í þessu að það er verið að taka á og skerpa á sérstaklega varðandi fatlað fólk og sérstaklega að sjá til þess að skerpa á þeirra réttindum. Það er líka verið að breyta því þannig að skólar eða sérstakar deildir í námi geti þá tekið ákvarðanir t.d. í sambandi við vinnustaðanám og annað. Það er verið að reyna að einfalda hlutina og gera þá þannig að það séu fleiri sem geti komið að og gera hlutina á miklu einfaldari og þægilegri hátt heldur en nú er. Það er bara verið að skerpa á því í þessum lögum að gera hlutina einfaldari þannig að, hvað á maður segja, allir sitji við sama borð eða eins og þau segja; eins mikið við sama borð og hægt er.