framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir hans yfirferð á þessu annars ágæta máli. En mig langar að benda á að hæstv. ráðherra hefur ítrekað lýst yfir, sem er gott, mikilli trú sinni á börnum og unglingum og fullorðnum og þegar eitthvert sameiginlegt er í boði þá taki allir sanngjarnan skerf en hrifsi ekki alla kökuna, sem er bara fín hugsun. Hvort hún er raunsönn læt ég kannski kyrrt liggja að ræða um. En það sem er í þessu frumvarpi setur frekari íþyngjandi reglur fyrir nemendur og ábyrgð nemenda. Sá kafli er tekinn svolítið hressilega í gegn en kaflinn um rétt nemenda breytist ekkert. Í lögunum er að finna að skólar eigi að setja sér skólareglur. Ég spyr því: Hvers vegna duga ekki skólareglurnar eins og bara í skólum, eins og þær hafa gert almennt? Skipta reglur meira máli heldur en viðhorf? Væri ekki viskulegra að fara inn í kaflann um skólabrag og vinna hann betur í stað þess að teygja reglurnar og gera þær einhvern veginn ítarlegri? Þetta hljómar svolítið eins og við séum að tala um fangelsi, það er talað um viðurlög við hinu og þessu. Þetta er ekki einhvern veginn uppbyggjandi orðalag fyrir börn í skóla, því að langflestir framhaldsskólanemar eru nú líklegast enn þá börn.