framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans andsvar. Ég verð bara að segja honum alveg strax í byrjun að jú, ég hef fulla trú á börnum og unglingum. Ég efast ekki um að við eigum að hlusta meira vegna þess að ég segi alltaf að við sem erum í pólitíkinni, við tölum mikið og gleymum oft að hlusta. Ég varð nefnilega rosalega ánægður á ráðstefnunni þegar við fengum að sjá myndbönd með börnum. Eitt af því sem kom ítrekað fram var: Hlustið á okkur. Ekki tala til okkar, hlustið á okkur. Og líka að þau vilja t.d. — það kom alveg stórfurðuleg spurning frá einum unglingi sem var að fara að útskrifast. Hún spurði: Af hverju er ég að útskrifast og ég hef ekki hundsvit á því hvernig ég á að gera skattskýrslu? Ég hef aldrei séð hvernig ég á að gera skattskýrslu og hvers vegna þetta er og þetta er og hvað verður um skattpeningana okkar og annað. Engar upplýsingar. Það segir sig sjálft að okkur ber skylda til þess að hlusta á börnin og ég sá það þarna að þau vita nákvæmlega hvað þau vilja. En það er spurning hvort við höfum hlustað.
Í sambandi við skyldu nemenda, þetta kemur út frá því að þau hafa gert kröfu um að það sé gert eitthvað í þessum málum. Það er gerð krafa um það að ábyrgð og skyldur nemenda séu líka teknar til greina vegna þess að við verðum einhvern veginn að hlusta og koma ábyrgð líka inn í samfélagið. Við getum ekki alltaf talað um hvað eigum við að gera. Við verðum að hlusta. Við erum að taka ábyrgð á því og því hvernig skólakerfið er (Forseti hringir.) og sjá til þess, eins og með þau ofbeldismál sem eru í gangi, að við séum að finna einhverjar lausnir (Forseti hringir.) og við leysum það mál ekki nema í samstarfi við börnin. Það er alveg á hreinu.