framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég get alveg upplýst hann um það að þessar kröfur hafa komið upp innan hópa í skólum, t.d. frá metoo-hreyfingunni og hópum innan skóla, að það sé brugðist við ofbeldi í skólakerfinu. Það segir sig sjálft hverjir geta virkilega gert kröfu um að það sé brugðist við þessu; það hljóta að vera þeir sem eru í skólakerfinu og einhverra hluta vegna þá virðast þessir hópar taka ábyrgð á þessu ástandi og vilja að það séu gerðar harðari kröfur og að það sé virkilega tekið á því að stöðva þetta ofbeldi sem hefur viðgengist. Sem betur fer, ég segi: sem betur fer, ég gleymi því oft, er kerfið er gott hjá okkur. Við erum með frábært kerfi, við erum með fullt af góðum nemendum og við erum virkilega í góðum málum að stærstum hluta. En það er alltaf þessi undantekning og það er sú undantekning, eins og ofbeldi og annað, sem við erum að reyna að bregðast við og eigum að bregðast við.