framhaldsskólar.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Baldursdóttur fyrir hennar innlegg. Það kom fram í máli hv. þingmanns að hér sé ekki verið að búa til eitthvað sem er bara frábært til að gera eitthvað og meira því líkt. Það kom líka fram í í máli hv. þingmanns að það væri búið að útvíkka innritunarreglurnar í framhaldsskólunum. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður hefur lesið framhaldsskólalögin en það sem er núna til umfjöllunar í þessu frumvarpi er ekki útvíkkun á þeim reglum sem voru. Svo ég vísi í annað sem hv. þingmaður nefnir, að í fyrsta sinn séu þingmenn að axla ábyrgð á þessum lögum, þessu frumvarpi, þá ætla ég bara að lesa beint upp úr gömlu lögunum, 33. gr. a, um ábyrgð nemenda, en þar stendur: „Nemendur bera ábyrgð á eigin námi, framkomu sinni og samskiptum.“ Þetta er búið að vera í lögum árum saman. Þetta er engin nýjung, að nemendur axli ábyrgð á eigin námi, gjörðum, samskiptum og hegðun þannig að það að þetta sé ekkert til þess að búa eitthvað til sem er frábært — ég veit ekki, ég held að það eigi bara við. Svo kom meira hér fram hjá hv. þingmanni. Það sem er að finna í framhaldsskólalögunum um nemendur með fötlun er, með leyfi forseta:
„Á framhaldsskólastigi skal veita nemendum með fötlun og nemendum með tilfinningalega eða félagslega örðugleika kennslu og sérstakan stuðning í námi. Látin skal í té sérfræðileg aðstoð og viðeigandi aðbúnaður eftir því sem þörf krefur. Nemendur með fötlun skulu stunda nám við hlið annarra nemenda eftir því sem kostur er.“
Hér er ég bara að vísa í lögin sem eru í gildi en (Forseti hringir.) hv. þingmaður lætur líta út fyrir að það sé einhver flugeldasýning hér í gangi, þvert á það sem hún nefndi í lokin að hún væri ekki að gera.