framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég náði ekki alveg hver spurningin var, hv. þm. Jón Pétur Zimsen var svona meira að segja að ég kannski þekkti ekki lögin eins og þau væru núna nógu vel því að þau væru í rauninni með þetta allt sem nýja frumvarpið er með. Ég ætla ekki að fara að hártogast nákvæmlega um það en þetta er tiltölulega ítarlegt í þessu nýja frumvarpi, myndi ég segja, og það er verið að vísa þarna bæði í barnasáttmálann og það er verið að vísa í EKKO, hv. þingmaður veit hvað það er, vegna kynferðisofbeldis og eins er líka dálítið vel útfært að nemendur beri ekki aðeins ábyrgð heldur eru afleiðingar. Það er auðvitað byrjað að fara mildilega, fara alltaf vægustu leiðina, en síðan er mjög vel skilgreint hvernig afleiðingar geta síðan stigmagnast eftir því hvert afbrotið er, ef það má orða það svo. En ég veit að það getur verið erfitt líka fyrir suma — nú er hv. þm. Jón Pétur Zimsen fyrrum skólastjóri og kannski hljómar það ekkert vel í eyrum margra að sú sem hér stendur sé mikið að hrósa þessu, hrósa í hástert má segja, það getur vel verið að það fari fyrir brjóstið á einhverjum í stjórnarandstöðunni, að þau vilji ekki alveg sjá að þetta sé svona gott. En ég verð að segja það að eftir að hafa lesið þetta tiltölulega rækilega þá er ég að sjá hérna allt annan tón. Það er einhvern veginn allt annað viðhorf, mildara viðhorf varðandi einstaklingsmun og fjölbreytni. Það getur vel verið, ég veit ekki hvort þetta standi nákvæmlega svona í frumvarpinu, nei, ég skal viðurkenna það að akkúrat samhliða þessu frumvarpi las ég ekki lögin eins og þau eru núna en þau hafa auðvitað verið að lagast og taka breytingum.
Svo getum við alveg talað um aðgengi skóla fyrir fötluð börn. Því er náttúrlega víða ábótavant og á eftir að vinna áfram í því. En það var mjög lengi þannig að það var bara einhver einn skóli sem gat í raun tekið við fólki með fötlun í nám þannig að við eigum sennilega langt í land með það.