156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

framhaldsskólar.

282. mál
[19:10]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen þarf ekki að þakka mér fyrir að sýna þessu áhuga, ég vil allt eins þakka honum. Við erum fólk sem höfum verið í skólamálum og það þarf ekkert að þakka okkur neitt sérstaklega fyrir að sýna þessu áhuga, en allt í góðu. En það kveður við allt annan tón í þessu nýja frumvarpi. Það er alveg sama hvað hv. þingmaður vill eitthvað reyna að segja að þessi lög sem fyrir eru séu kannski bara ágæt og við höfum þess vegna ekkert þurft að gera breytingar. Það kveður við allt annan tón sem er ekki skrýtið. Við erum allt annað samfélag. Bara síðustu árin höfum við verið að breytast mikið, það er mikil fjölbreytni og það á að fara að horfa á einstaklinginn þannig að það kveður við allt annan tón, alveg sama hvernig litið er á þetta. Sérstaklega við innritunina, núna er heimilt að horfa til mun fleiri þátta heldur en í þeim lögum sem við erum að fara frá. Við skulum algjörlega vera með það á hreinu, alveg sama hvernig við viljum lesa og bera saman, að þetta er algerlega ný nálgun og það er líka þannig með breytingar á grunnskólalögunum. Þarna erum við að koma inn með nýja nálgun og það er búið að vinna þetta vel. Þetta er búið að taka sinn tíma. Þetta er búið að vera síðustu misseri og meira að segja í höndum á fyrri ríkisstjórn talsvert mikið þar sem þetta á sitt upphaf. Það eru margir búnir að koma að þessu, allir helstu sérfræðingar landsins og samráðið búið að vera gríðarlegt þannig að það er ekkert skrýtið að við séum núna með frumvarp þar sem kveður við glænýjan tón og það er eitthvað sem við ættum að vera ótrúlega ánægð með. Vonandi munum við sjá að líðan barna fari að lagast, nú koma lærðar skýrslur næstu misserin frá landlækni og víðar að og þá vonandi sjáum við að börnum sé að líða eitthvað ögn skárra vegna þess að við ætlum að mæta þeim þar sem þau eru.